neinei
jájá, ég veit ekkert hvar ég vil blogga. en nú um stundarsakir, eða um sinn, mun ég vera á íslensku slóðinni www.jonabjorg.blog.is
farið þangað og snautist til að commenta, það er miklu einfaldara en hjér, auk þess sem lúkkið er flottara.
jájá, ég veit ekkert hvar ég vil blogga. en nú um stundarsakir, eða um sinn, mun ég vera á íslensku slóðinni www.jonabjorg.blog.is
farið þangað og snautist til að commenta, það er miklu einfaldara en hjér, auk þess sem lúkkið er flottara.
jáájá gott fólk.
biturðin heldur nú áfram. það er búið að hækka gjaldið í strætó, aftur og enn! Þetta skiptir mig engu máli þar sem ég er með kort sem gildir fram í júníbyrjun en þetta ergir mig samt!
Það liggur við að ég sé sammála einum netverja á vísi um að þetta sé eitt stórt allsherjar plott og þessi hækkun sé bara enn eitt skrefið í því að leggja strætó bs alfarið niður.
Samkvæmt fréttum inn á bus.is hefur farþegum fjölgað nokkra mánuði í röð, mig minnir að seinustu hækkanir hafi verið vegna hækkandi olíuverðs en farþegafjölgunin ætti að hafa dekkað það.
þess vegna er mér það svo óskiljanlegt hvers vegna þeir telja sig þurfa að hækka gjaldskrána. ég sé engin haldbær rök liggja þar að baki.
jú Strætó er rekið með halla, en með því að hækka fargjöldin, fækkar farþegum, með fækkun farþega, meiri halli.
Mér þykir sárt að segja það, en Akureyri er með rétta hugarfarið við þetta. Þeir sjá hag sinn í því að reyna að leggja eitthvað að mörkum til þess að reyna að minnka umferð auk þess sem fólk er tilbúið að prófa eitthvað sem er frítt og þá jafnvel komast að því að það er kannski ekki alveg ómögulegt og ömurlegt að ferðast með strætó.
jájá. en svona er þetta, það eru ekki alltaf jólin. Einhvern tímann mun ég kaupa mér bíl, það líður að því, það líður að því.
nú er það þannig að visir.is var einu sinni hrikalega ljót fréttasíða með afskaplega vondum pixlafátækum myndum.
nú er vísir þó búinn að skána þó nokkuð og er nú bara ljót.
Það sem böggar mig nú einna helst þessa daganna er þegar ég lít þarna inn og les fréttir þá birtist allt í einu LogiB og les fréttina aftur orðrétt upp fyrir mig.
fyrir utan hvað þetta hægir á síðunni þá vil ég geta valið um hvort að fréttin sé lesin fyrir mig eða hvort ég lesi hana sjálf!
nú gætu margir sagt, það er verið að fá myndrænt sjónarhorn á fréttina sem þú varst að lesa, með skýrandi fréttamyndum. mikið rétt, en ef ég vil fá lýsandi fréttamyndir, fer ég einmitt inn á rúv og horfi á fréttir.
basta! viva free will!
já, ok, ég er líka pirruð að það var bætt inn einhverju vinakerfi hérna á blog.com, og ég get ekki tekið það út (m.a. vegna þess að þeir eyðilögðu fríu premium áskriftina mína) og þá kemur eins og ég sé í e-um gelgjuflokki og eigi þar að auki enga vini. ðpiff. sumum upplýsingum vil ég nú bara að fá að halda útaf fyrir mig! 
Datt ofan í þætti sem heita Dexter um daginn, þegar allir þættirnir mínir voru í fríi.
geðveikir þættir, í orðsins fyllstu merkingu 
