glataði bloggarinn
Tók mig til í aðferðafræði og breytti Þorgeir!
Nú er Þorgeir mjög smekklega innanhúshannaður með aðeins örfáum vanköntum..
lýsi reyndar eftir einhverjum sem nennir að samræma letrið i eldrefnum við restina..
nú hefur ekkert stöðvað mig hingað til í að skrifa um spees fólk hérna, (þ.a.m sérsveitarmanninn, sjálfa mig, vinnufélagana og þar fram eftir götunum)
það sem ég hinsvegar ætlaði að tjá mig um var að þegar ég varð vitni að búðarhnupli, ég held satt best að segja að þessu megi lýsa sem uppskrift að vanheppnuðu búðarhnupli. í fyrsta lagi var konan án efa í einhvers konar annarlegu ástandi, hún stal úr apóteki í verslunarmiðstöð, hún var ekki á bíl og hún faldi sig handan við horn á Smáralindinni. Síðan þegar greyið móði lyfjafræðingurinn náði í hana, sagði hún að hann væri leiðinlegur! -óþarfi að móðga greyið!
Sem sagt, alltaf gaman að fylgjast með samborgurum sínum í lífinu, auðvitað hefði ég átt að bjóða konunni með mér í strætóinn sem var að bíða eftir mér.
bahh, nennessu ekki lengur, back to the studies!
