ástarjátning, skrifuð með glóð
ég sé það núna að brunasárið sem ég fékk um þarsíðustu helgi, hefur ekki verið slys.. heldur hefur einhver byrjað að reyna að skrifa nafnið sitt á handarbakið á mér - með glóð.
ég hef greininlega verið eitthvað viðskotaill og kippt að mér hendinni áður en símanúmerið var komið..
þannig að, einhver þarna úti, sem byrjar á L.. viltu fá númerið mitt á handarbakið á þér? 
