Wednesday, October 11, 2006

sarúsb

nú standa yfir miðannarpróf í elskulegu lögfræðinni. 

Þannig að, nú sit ég ennþá lengur en vanalega með Þorgeiri minum í lessalnum og grúska í glærum og glósum.

Eins og ég hef kannski minnst á, þá á ég við mína óskrifandi fötlun að stríða. Þannig að nú er ég með strengi í hægri hendinni eftir að hafa skrifað örfáar blaðsíður á 2 tímum í fyrradag.

En það sem mér þykir þó einna skondnast í þessu öllu, þegar ég skrifa með blýpennum eða pennum er skriftin mín fullkomnlega óskiljanleg. En þegar ég fann um daginn, blýanta sem eru ætlaðir til teiknunar, fór ég loksins að sjá út úr krassinu hjá mér. Sem auðvitað er laukrétt og rökrétt.  Auðvitað er þetta ekki skrift hjá mér, heldur tilraun til listsköpunar.


Posted by Jóna Björg at 16:13:29 | Permanent Link | Comments (4) |
Comments
1 - hahahahhahaha snilld! Þetta er svo rökrétt niðurstaða það það er ekki hægt að gefa þér annað en 10 fyrir þetta! Vel rökstutt, með vísan til fordæma og skv. eðli máls er niðurstaðan rétt! (Comment this)

Written by: Arna at 2006/10/14 - 13:52:30
2 - Þannig að ef þú tekur blýantana þína, skrifar eitt stykki ritgerð á stórt blað, þá gætiru selt það fyrir millur svona 100 árum eftir að þú hrekkur upp af! :) (Comment this)

Written by: Sveinbjörg at 2006/10/14 - 18:55:32
3 - Þú kemur næstu helgi.. ?????? (Comment this)

Written by: Þóra...:D at 2006/10/14 - 21:10:08
4 - ahahahah! ég þakka fyrir tíuna..

já, að sjálfsögðu, þess vegna geymir skólinn öll prófin mín. þeir vita hvurskonar verðmæti liggja í þessu.

og ójáááá.. ég kem norður um næstu helgi! :D (Comment this)

Written by: Jóna Björg at 2006/10/15 - 17:46:33
Write a comment