Wednesday, November 15, 2006

Fréttir les..

Jæja! Nú verða sagðar fréttir!

ég er hætt í HR! já, ég ákvað að hætta þessari vitleysu bara í bili og gera eitthvað skemmtilegt!

þannig að! ég fann mér vinnu. Á verkfræðistofunni Hnit.

og svo fann ég mér líka íbúð! sem ég er búin að vera að vinna eins og bavíani í ásamt meðleigendum mínum að gera íbúðarhæfa síðustu vikurnar.

í tilefni af því ætla ég svo norður á föstudaginn og verð þar til 26.nóvember (en þá á Berglind frænks einmitt afmæli, svo það sé á hreinu)

þannig er einmitt hægt með afleiðu að sjá hvers vegna ég hef ekki bloggað nýlega. >ég hef lítið verið í skólanum > ég hef verið að vinna í íbúðinni minni > það er ekkert net heima hjá mér > ég blogga ekki.

Annars er ég ansi fegin að vera að flytja úr hverfinu hennar ömmu. Fólkið sem gengur fram hjá eldhúsglugganum hennar ömmu og greyið póstberinn eru ábyggilega fegnari. í gær þegar ég dröslaðist loksins á fætur og var að finna mér föt í forstofunni hjá ömmu og var, aldrei þessu vant að tala við sjálfa mig (ég lofa, það gerist bara stundum!) þegar greyið póstberann ber að garði og skellir póstinum inn um lúguna. nema hvað, mér bregður svona líka! og rek upp skaðræðisgól! greyið póstberinn, þorir ábyggilega aldrei að bera út póstinn til ömmu.

 

 

Posted by Jóna Björg at 13:55:19 | Permanent Link | Comments (9) |
Comments
1 - Til hamingju með íbúðina :)

Um að gera að breyta til ef maður er ekki að finna sig! Gott hjá þér.. :) (Comment this)

Written by: Sveinbjörg at 2006/11/19 - 01:08:29
2 - þú ert léleg að blogga!!!!! Það fer alveg að koma 22.nóvember!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! (Comment this)

Written by: Arna at 2006/11/21 - 22:11:57
3 - nú er kominn 23.nóv. hvað gera Örnur þá?
nenni ekki að blogga um þegar ég fattaði hvernig ég gæti gefið þrjá smákálfapela í einu, nú eða þegar ég festi ófestanlegan Landrover út á túni.
En ég mun klárlega blogga um þegar ég fer í 2. skiptið út fyrir jarðamörkin (núverandi) og í þetta skiptið verður það ekki til að fara með ruslið! (Comment this)

Written by: Jóna Björg at 2006/11/23 - 00:02:50 in reply to: 2
4 - Ég ætla bara að benda þér á það að núna er kominn 24!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Og eitthvert aumt svar við vel rökstuddri kvörtun AIN'T DOIN' IT! (Comment this)

Written by: Arna at 2006/11/23 - 23:42:58
5 - Ég bíð spennt efitr þessu heljarinnar innflutningpartý....;)
adios öldungurinn (Comment this)

Written by: Berglind frænkz at 2006/11/29 - 11:53:14
6 - D E S E M B E R ! ! ! ! ! ! ! ! ! ! ! ! ! ! ! ! ! ! OG MEIRA AÐ SEGJA NÚMER 2!!!!! (Comment this)

Written by: Arna at 2006/12/02 - 01:00:24
profile
7 - well, ekki get ég bloggað meðan þú ert að reyna að neyða mig til að horfa á e-r hrossamyndbönd með unni birnu! (Comment this)

Written by: Jóna Björg at 2006/12/02 - 01:02:57
8 - hahahahahahaahahahhahahahahahahahahahhahahaahahahahaahhahahaa (Comment this)

Written by: Arna at 2006/12/02 - 01:05:34
profile
9 - Arna, what does it all mean?? (Comment this)

Written by: coolcat at 2006/12/07 - 14:56:56 in reply to: 2
Write a comment