Wednesday, December 06, 2006

Morbid, morbid dagur í vinnunni í dag.

Klukkustund eftir að ég mætti til vinnu sleit einhver eitthvert iðnaðargáfnaljós í sundur eittþúsund símastrengi, þar á meðal alla þá sem lágu í Verkfræðistofuna Hnit (góðan dag). þannig að það sem eftir lifði dags var ekkert símasamband eða netsamband við okkur.

Hvað í óskupunum á fólk að gera í vinnunni þegar það er ekkert net? 

þannig að í dag, skreyttum við jólatréð.. og fór í Heiðrúnu (vínbúðina..), svaraði ekki í símann, skrældi (segir maður það) egg.. vúbbíídúú... 

Posted by Jóna Björg at 19:28:28 | Permanent Link | Comments (4) |
Comments
1 - Æ samt bara gott að fá svona tjill daga einstaka sinnum í vinnunni:)
Ohh allt jólaskrautið mitt er fyrir norðan þannig að það vera engin jól í íbúðinni minni í ár:( (Comment this)

Written by: Sigurdís at 2006/12/08 - 13:27:06
2 - já.. skrautið okkar er líka fyrir norðan.. Maður fer bara í RL group og kaupir sér eitthvað ódýrt og sætt til að hafa eitthvað.. :) Ég held að orðið skræla feli í sér að hafa hníf í hendinni.. .Ég held að maður hljóti að flysja eggin... Annars veit ég það ekki.. Þetta er ekki beint það sem ég er að velta fyrir mér þegar ég ligg andvaka á kvöldin og reyni að leysa öll heimsins vandamál :) (Comment this)

Written by: Sveinbjörg at 2006/12/08 - 21:34:21
3 - minntist ég á eitthvað chill í vinnunni? hehehe
en já, allt jólaskrautið mitt er einmitt líka fyrir norðan, þannig að hérna á klöppinni erum við með aðventuljós og einn jólasveinn til skrauts. svo hátíðalegt! :)

já, Sveinbjörg þú hefur greinilega aðeins pælt í þessu, þannig að ég fór að gera það líka!
ég samþykki að það sé ekki hægt að segja skræla, það bara passar ekki. en er hægt að flysja egg ef það kemur ekki flus af eggjunum, heldur skurn? pældu í þessu!
 (Comment this)

Written by: Jóna Björg at 2006/12/09 - 11:55:21
4 - Þú skurnar eggin! Og hana nú! (,,,sagði hænan og lagðist á bakið...?) (Comment this)

Written by: Berglind at 2006/12/15 - 04:28:21
Write a comment