Saturday, December 23, 2006

í jólaskapi

ég komst heil heim, bara degi seinna er áætlað var. en ég komst norður og það skipti mig öllu. Vona að það komist allir heim til sín um jólin.
Jóla-jóna hefur talað með gleði í hjarta og jólaepli í maga.

Ég ætla að láta mér líða betur í hjartanu en mörg önnur jól, nú get ég ekki haft áhyggjur af neinum prófum og er þá eitthvað til að hafa áhyggjur af? ég held ekki.

er búin að renna yfir jólakortin, rakst á einn Akranes póststimpil sem ég er gríííðarlega forvitin um en bansett umslagið er límt aftur, svo að ekki get ég kíkt fyrr en annað kvöld...

Hljóp beina leið út í fjós þegar ég kom heim í kvöld og rakst þar á eina nýfædda kvígu sem myndi heita Ófeigur Þorlákur ef hún væri naut. Hjálpaði henni með ein af fyrstu skrefunum, en hún var ansi slöpp eftir að hafa næstum endað stutta tíð sína í flórnum.

 

Svo að lokum vil ég óska lesendum þessarar litlu síðu gleðilegra jóla og þakka fyrir lesturinn á árinu, um leið og þingeyingurinn fer i jólafötin.

Posted by Jóna Björg at 22:48:41 | Permanent Link | Comments (4) |
Comments
1 - Gleðileg jól! (Comment this)

Written by: Berglind Ólafsfirðingur at 2006/12/25 - 01:30:31
2 - já gamla mín, þú átt sko leynilegan aðdáanda á akranesi ...

viva los skaginn..

sjáumst hressar í einhverju ölæði fljótlega..

ester (Comment this)

Written by: ester at 2006/12/25 - 22:47:22
3 - Gleðileg sveitajól aftur Djóní mín og takk fyrir mig! :)

Hafðu það sem allra best og ég öfunda þig!!!!

ARna (Comment this)

Written by: Arna at 2006/12/25 - 23:26:35
4 - Glædlig jul! :) (Comment this)

Written by: Sveinbjörg at 2006/12/27 - 23:17:15
Write a comment