vísir
nú er það þannig að visir.is var einu sinni hrikalega ljót fréttasíða með afskaplega vondum pixlafátækum myndum.
nú er vísir þó búinn að skána þó nokkuð og er nú bara ljót.
Það sem böggar mig nú einna helst þessa daganna er þegar ég lít þarna inn og les fréttir þá birtist allt í einu LogiB og les fréttina aftur orðrétt upp fyrir mig.
fyrir utan hvað þetta hægir á síðunni þá vil ég geta valið um hvort að fréttin sé lesin fyrir mig eða hvort ég lesi hana sjálf!
nú gætu margir sagt, það er verið að fá myndrænt sjónarhorn á fréttina sem þú varst að lesa, með skýrandi fréttamyndum. mikið rétt, en ef ég vil fá lýsandi fréttamyndir, fer ég einmitt inn á rúv og horfi á fréttir.
basta! viva free will!
já, ok, ég er líka pirruð að það var bætt inn einhverju vinakerfi hérna á blog.com, og ég get ekki tekið það út (m.a. vegna þess að þeir eyðilögðu fríu premium áskriftina mína) og þá kemur eins og ég sé í e-um gelgjuflokki og eigi þar að auki enga vini. ðpiff. sumum upplýsingum vil ég nú bara að fá að halda útaf fyrir mig! 

Ég fer samt inn á vísir.is á hverjum degi því ég er með tölvupóstfang þar og mér finnst þetta ágætis fréttasíða svoan yfirleitt...
Stop being bitter woman.. :) (Comment this)
en jú, ég fer inn á vísi.is svo gott sem daglega. en þó ekki fyrr en ég er búin að lesa mbl.is í tætlur! (Comment this)
já, en það er satt Gaxið mitt, ég þarf að hringja í þig fljótlega og taka aftur gamalt og gott 45 mínútna maraþonspjall! :D (Comment this)