Strætó bs.
jáájá gott fólk.
biturðin heldur nú áfram. það er búið að hækka gjaldið í strætó, aftur og enn! Þetta skiptir mig engu máli þar sem ég er með kort sem gildir fram í júníbyrjun en þetta ergir mig samt!
Það liggur við að ég sé sammála einum netverja á vísi um að þetta sé eitt stórt allsherjar plott og þessi hækkun sé bara enn eitt skrefið í því að leggja strætó bs alfarið niður.
Samkvæmt fréttum inn á bus.is hefur farþegum fjölgað nokkra mánuði í röð, mig minnir að seinustu hækkanir hafi verið vegna hækkandi olíuverðs en farþegafjölgunin ætti að hafa dekkað það.
þess vegna er mér það svo óskiljanlegt hvers vegna þeir telja sig þurfa að hækka gjaldskrána. ég sé engin haldbær rök liggja þar að baki.
jú Strætó er rekið með halla, en með því að hækka fargjöldin, fækkar farþegum, með fækkun farþega, meiri halli.
Mér þykir sárt að segja það, en Akureyri er með rétta hugarfarið við þetta. Þeir sjá hag sinn í því að reyna að leggja eitthvað að mörkum til þess að reyna að minnka umferð auk þess sem fólk er tilbúið að prófa eitthvað sem er frítt og þá jafnvel komast að því að það er kannski ekki alveg ómögulegt og ömurlegt að ferðast með strætó.
jájá. en svona er þetta, það eru ekki alltaf jólin. Einhvern tímann mun ég kaupa mér bíl, það líður að því, það líður að því.
