Friday, October 28, 2005

Kitl #2

Bara af því að ég er svo góðhjörtuð ætla ég að lána Örnu bloggið mitt um stundarsakir undir fyrrumskrifað kitl.
ég bið lesendur að hafa í huga að fátt af eftirtöldu á við um eiganda þessa bloggs, sér í lagi það sem er sagt um Gary Oldman!

en anyways! hjér kemur Kitl!

Posted by Jóna Björg at 18:04:04 | Permanent Link | Comments (3) |

las á netinu í morgun að það væri snjór í Reykjavík.. hef ekki enn þorað að líta út um glugga...
Ætla að bíða í klst í viðbót, þá verður snjórinn alveg örugglega allur farinn!

Posted by Jóna Björg at 11:58:49 | Permanent Link | Comments (2) |

Tuesday, October 25, 2005

Kitl

uss, þetta hættir aldrei, þessir blessuðu leikir, nú er kitlið komið á kantinn. sem hlýtur þó að teljast skárra en Rúnkið.  
þessir leikir eru orðnir ansi umfangsmiklir, 49 atriði eru slatti!
Svó, here we go

Sjö hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey 
  1. búa út í Englandi
  2. fara í bændaskóla
  3. snoða mig
  4. fara í köfun
  5. keyra alvöru sportbíl, alvöru, alvöru sportbíl
  6. að verða rík
  7. fara til Rússlands
sjö hlutir sem ég get gert
  1. látið braka ískyggilega í fingrum, únliðum og olnboga, já og í tánum líka
  2. bakkað vörubíl með aftaní vagni
  3. lesið nótur
  4. eytt peningum (mjög góð í því)
  5. munað ótrúlegustu hluti... prófið bara
  6. djammað
  7. ferðast með strætó

    fyrst það er verið að tala um kitl, þá er rétt að nefna að ég get kitlað fólk til ólífis.. spyrjið bara systur mína...
Sjö hlutir sem ég get ekki...
  1. verið þolinmóð
  2. drukkið vodka
  3. skrifað skiljanlega 
  4. klappað og stappað í mismunandi takti
  5. tekið ósigri, er viðurstyggilega tapsár
  6. gert handavinnu, prjóna, hekla, stoppa í etc...
  7. gleymt nöfnum (nema einu, en það fer alveg að detta inn)
Sjö hlutir sem heilla við hitt kynið..
  1. augu
  2. hár
  3. karakter
  4. dulúð
  5. húmor
  6. hendur
  7. og eitt í viðbót
sjö frægir sem heilla
  1. Clive Owen
  2. Gael
  3. Gale Harold
  4. Baltasar Kormákur (svona fyrir íslensku deildina)
  5. Jude Law
  6. Johnny Depp
  7. Woody Harrelson
sjö setningar/orð sem ég segi oft
  1. sko
  2. heyrðu
  3. þúst
  4. addna
  5. sko heima í sveit þá..
  6. tími á bjór?
  7. djös drasl!
sjö hlutir sem ég sé akkurat núna
  1. kusukanna
  2. tölvan
  3. smáralind
  4. rugguhestur úr stráum
  5. föt út um allt gólf
  6. Krítarspil
  7. stakur vettlingur
jæja... þetta var nú ótrúlega lítið mál!
og þá er það skemmtilegi parturinn, að kitla sjö aðra!!
ég kitla, Guðfinnu, Berglindi, Þóru Magneu, Ester, Dagnýju, Kötu Sif og Sveinbjörgu
Posted by Jóna Björg at 18:22:07 | Permanent Link | Comments (5) |

Gefass djamm

jæja helgin í hnotskurn!

Föstudagur:
huh, hann er strax farinn að skolast til í hausnum á mér, aha, þar kom hann. Mamma og Þóra voru komnar í bæinn, mamma keypti á mig alklæðnað og meira til (reyndar ekki sokka, bévuð) og svo fórum við með mat til Erlu frænku. �"trúlega góður matur frá Shalimar, ekki hægt að segja annað en að hann hreinsi vel útúr sýsteminu, ég logaði allaveganna öll eftir þetta!
já, jú, svo fór ég bara í bæinn til hennar Ástu þar sem, Sigurdís, Ágústa og Hildur kíktu í heimsókn. Með aðeins rósavín og byggbjór að vopni var djammið mitt heldur bitlaust og þess vegna var ég bara komin heim um hálfþrjú leytið.

Laugardagur:
Týpískur dagur með systur í borg, búðarráp! :)
Smáralíndin varð fyrir valinu þar sem Ásta var að vinna sem bók.... þarf að ræða það nánar?
en að kvöldinu.
þegar klukkan sló í akkúrat í níu opnaði ég hurðina á Caruso og taldi víst að ég væri að minnsta kosti seinust. en nei, ég er að sjálfsögðu langfyrst. alltaf gaman að sitja með risastóran pakka ein... fnuss, en Adam var ekki lengi í paradís því auðvitað komu stelpurnar að vörmu spori (eftir að ég rak aaðeins á eftir þeim ;)).  Að fara út að borða með svona skemmtilegum stúlkum er auðvitað alltaf gaman en þetta var alveg súper. svona alvöru going out fýlingur, fá sér fordrykk, kjafta frá sér vit og rænu, fá skemmtilegt borð, góð þjónusta, æðislegur matur og bara nefndu það!
Inga bauð svo í teiti í Fossvoginum sem var mjög gaman (verðum nú samt að splæsa í bjór handa henni við tækifæri fyrir alla sem hún gaf okkur!). Eftir að hafa hringt í allar leigubílastöðvar á landinu og alla þá sem áttu mögulega bíl og voru hugsanlega í ástandi til að keyra okkur (sem er hægara sagt en gert) tókst okkur loksins að komast í bæinn. Við töltum eitthvað um bæinn en stelpurnar bitu það svo í sig að vilja alveg eendilega fara á Hressó, þar sem það var alveg ógeeðslega löng röð, en einhvern veginn létum við okkur hafa það (gæti hafa hjálpað að Inga átti ennþá bjór) en eftir alveg furðustuttan tíma komust við loksins inn (og Jóna var aldrei þessu vant ekki spurð um skilríki, til hvers er mig eiginlega að hlakka til tvítugsafmælisins, not like that's gonna change anything!).
þetta var alveg ruusalegt, mikið skotið og mikið dansað. Svona á þetta að vera :)
þegar líða tók á kvöldið fór alltaf að fækka smám saman í hópnum, Fanney hvarf einna fyrst og síðust, Ágústa dugði ekki mjög lengi (merkilega þó! stolt af þér), Ester fór heim einhvern tímann seint til þess að.... búa til kjúklingasalat og Inga, já humm, Inga? Ætli hún sé enn á Hressó?
Klukkan sjö var ég komin á stúdentagarðanna til Sigurdísar í "eftirpartý" þar sem partýið samanstóð af jógúrt og popptíví,  ákvaðég  að það væri miklu sniðugra að taka leigubíl í íbúð móður minnar en til systur minnar þar sem ég var með gistingu. Vakti litlu systur mína og skreið upp í tvíbreiða svefnsófann hjá henni og stein*****. Clever Jóna.


Posted by Jóna Björg at 00:05:39 | Permanent Link | Comments (3) |

Friday, October 21, 2005

morguninn eftir..

ég skrifaði reiðasta pistil ævi minnar í gær. Eftir að hafa tekið smá rúnthring á netinu, pósturinn, blogg og svona, sauð á mér og ég skrifaði orðljótasta, sárasta og reiðasta pistil sem ég hef komist í tæri við. já, það lá illa á Jónu í gær. ég mun ekki birta þennan pistil, enda yrði hann censored út í gegn. áhugsasamir um íslensk blótsyrði og notkun þeirra mega hafa samband við mig.
Tilefnið, gengdarlaust óréttlæti, kvenfyrirlitning og heimska.
já, úff, ég verð bara aftur reið við að hugsa um þetta. hugsa happy thoughts, happýýý thoughts!

En að öðru, stelpurnar, mútta mín og systir mín eru allar væntanlegar í bæinn í dag! vei!!!!


ég í gærkvöldi...
Posted by Jóna Björg at 10:45:57 | Permanent Link | Comments (2) |
1 2 3