Monday, November 28, 2005

Nú verða sagðar fréttir

tékkaði á Evu í dag, með því að láta tölvufrændann minn hringja í Opin kerfi, því ykkur að segja er ég alls ekki tölvunjörðurinn innan stórfjölskyldunnar, svona í mesta lagi 3ji mesti tölvunjörðurinn...
en já, bilunin í Evu var víst ekki smávægilegur skítur eins og ég hafði vonast eftir heldur aaaðeins verra. þetta var sem sagt móðurborðið sem var að klikka í vélinni. (þarna tók ég andköf í símtalinu!) en örvæntið ekki!
Tölvan mín er ennþá í ábyrgð!! hah! þannig að verður bara nýtt móðurborð sett í vélina og ég fæ Evu vonandi á miðvikudaginn! magnað alveg hreint!
þessi tölva á eftir að verða forngripur! - annað en lánsvélin mín!

En jú, ég á mér víst líf utan tölvunnar minnar, var í fyrsta prófinu í dag, Stjórnskipunarrétti og ég veit hreinlega ekki hvað ég get sagt, hef ekki nokkra hugmynd hvernig mér gekk! krossa bara fingur!

en annars styttist óðfluga í heimför mína en hún verður þann 9.des! hlakka ekki lítið til, ætla samt bara rétt að vona að Akureyringar verði ekki byrjaðir að grafa fyrir síkinu þá...

djöfull er ég fegin að vera flutt af blog.central.is, ekki nóg með að vísisstikan hafi komið og bæsti hafi á auglýsingarnar, nú eru komnar fleiri auglýsingar, ooooj bara! finnst nógu slæmt að það sé ein auglýsing hérna.

er svo á leiðinni í leikhús á laugardagin, á Ég er mín eiginkona, við pöntuðum miða bara fyrir mánuði.

þannig að smá sömmopp

  • 1 og hálfur dagur í næsta próf,
  • 2 dagar í Eva útskrifist af sjúkrahúsi
  • 5 dagar í leikhús
  • 9 dagar í síðasta prófið
  • 11 dagar í að ég fari norður'
  • 12 dagar í laufabrauðsgerð
  • 15 dagar í að Sveinbjörg verði tveggja tugra
  • 26 dagar til jóla!
  • 28 dagar í 4f jólaboð
  • 30 dagar í Gefass árshátið

hmm... hverju er ég að gleyma?
Posted by Jóna Björg at 21:31:31 | Permanent Link | Comments (7) |

Saturday, November 26, 2005

Svona á að gera þetta!

ég spurði elskulega systur mína í dag hvort hún nennti nokkuð að senda mér nokkur lög út af því að tölvan mín er enn í viðgerð og lánstölvan mín hafði yfir ellefu lögum að ráða.
einu skilyrðin sem ég setti voru að lögin væru hress, hip og kúl.
nokkrum tímum seinna voru 132 lög í tölvunni...!!
næst ætla ég að biðja hana að lána mér nokkrar krónur.. hah! ;)
Posted by Jóna Björg at 19:11:24 | Permanent Link | Comments (5) |

Friday, November 25, 2005

Your Brain is 33.33% Female, 66.67% Male
You have a total boy brain Logical and detailed, you tend to look at the facts And while your emotions do sway you sometimes... You never like to get feelings too involved
What Gender Is Your Brain?

Dóh, kemur á óvart. ég er barnið í fjölskyldunni sem átti að vera strákur... er þó mömmu afar þakklát fyrir að hafa ekki vitað þegar ég fæddist að það mætti skýra börn Hlöðverína... gvöði sé lof!
Posted by Jóna Björg at 11:30:26 | Permanent Link | Comments (2) |

Monday, November 21, 2005

frábært

jæja, það hlaut að koma að því, my baby is broken. já þeir sem þekkja mig ættu að vita að barnið mitt er tölvan mín, það eru fáir staðir sem þar sem tölvan mín fær ekki að koma með og þeir eru: öldurhús að nóttu til og klósett...

en núna er tölvan mín s.s. biluð og er á leið á verkstæði á morgun klukkan þrjú (já, ég pantaði tíma hjá tölvulækni!). svo er bara að bíða og sjá hvort hún hafi það af. en ég er ansi hrædd um að þetta sé krabbamein, sem sé að dreifa sér.
nú ætti fólk líka að vita ég ég felldi tár yfir seinustu efnisgrein!

það er samt alveg með ólíkindum hvernig tölvur fara að því að bila alltaf fyrir próf (annarra manna tölvur, þ.e.a.s. mín hefur aldrei bilað). núna er ég til að mynda með lánstölvu og hvað byrjar hún á að gera? hún crashar!!! að gæti reyndar skýrst af því að ég gleymdi að hún er með helmingi minna innra minni en tölvan mín og ég opnaði ef til þremur of mörg forrit...

en jæja, minnist á Evu (tölvuna) í bænum ykkar í kvöld, ég er farin að gráta mig í svefn
Posted by Jóna Björg at 22:28:56 | Permanent Link | Comments (3) |

Thursday, November 17, 2005

I'm a Troll?


Stjórnmálaþurs

Þú ert vanaföst, tilfinningarík félagsvera.
Í margmenni á stjórnmálaþursinn oftar en ekki orðið. Ef einhver hyggst grípa fram í fyrir honum talar hann bara hærra - og það virkar. Hann hefur sterkar skoðanir á flestu, hvort sem um er að ræða fjárlagahalla ríkisins eða það hvort SS eða Goða pylsur eru betri, og gerir hvað hann getur til að þröngva þeim upp á aðra. Stjórnmálaþursinn þarf að passa sig þegar hann er í nærveru þeirra sem eru ósammála honum því blóðþrýstingurinn á það til að rjúka upp.

Stjórnmálaþursinn vantar ekki nýja skó fyrr en það er komið gat á þá gömlu... sem skósmiðurinn segist ekki geta gert við. Stjórnmálaþursinn veit hvar Guðsteinn er með verslun.

Hvaða tröll ert þú?
Posted by Jóna Björg at 18:10:45 | Permanent Link | Comments (5) |
1 2 3