Sunday, December 25, 2005

að hafa rétt fyrir sér...

jólahátíðin er jú tíminn þar sem maður á að vera góður við allt og alla...
það er því miður ekki alltaf hægt (sem skýrist síðar!)

nú vita áreiðanlega flestir sem þekkja mig eitthvað hvaða hug ég ber til Breta og hvaða hug ég ber til
Kana... en á jólunum á Björgum þetta árið eru einmitt einn kani og einn Skoti..
málið er sem sagt það að ég hef haft fullkomlega rétt fyrir mér.
því "einhverra hluta" vegna er kaninn sem er hjá okkur ERKITÝPA alls þess ég hef ég talið upp í fari kana sem er óþolandi! hahahaha og viti menn!
Skotinn er einmitt ekki óþolandi!

Afsökunarbeiðnir í minn garð óskast sendar á jbh1712@gmail.com og sannarnir fást á Björgum....
Posted by Jóna Björg at 19:37:58 | Permanent Link | Comments (7) |

Friday, December 16, 2005

jæja, þá er ég búin að vera í sveitinnni í ca. viku. 
ekki svosum margt brjálæðislega fréttnæmt, nema ef það teldist með að kusan Bót bar í dag og skemmdi þar með veðmálið mitt um að hún myndi bera á morgun sem hefði verið mun skemmtilegra! en ég hef Bleikju til að treysta á að hún skjóti einum kálfi úr sér á morgun ;)

annars kláruðum við pabbi að rýja um daginn, verkaskiptingin var þannig að pabbi rúði og ég kom einu sinni inní fjárhúsin og sagði hæ. við mamma byrjuðum einnig að baka, ég smakkaði og mamma bakaði
frábær verkaskipting!

annars er ég útúrreyktari en versti rastafari þessa daganna! magnaður skítur alveg hreint. í alvöru.
við erum að reykja kjöt og ég fæ þann heiður að bæta á eldinn nokkrum sinnum á dag, þannig að ef vel tekst til, brýst ég í gegnum reykinn í pínulitla reykhúsinu okkar, kveiki á vasaljósinu sem ég er með, finn skófluna (sem ég fatta aldrei að setja á sama stað) og byrja að moka til öskunni og glóðinni, sem jú enn rýkur úr og bæti svo eins mörgum taðflögum (sem flestir ættu nú að vita að er þurrkaður skítur!) á eldinn og ég get. Svo þarf ég þó aðeins að bíða og athuga hvort það komi nú örugglega ekki nægur reykur.

svo viðheldur reyklyktin af mér rússinu þangað til ég bæti á næst! heheheh

en annars hef ég ekki nennt að blogga mikið í fyrsta lagi vegna þess að Eva mín er ekki nettengd og auk þess nenni ég ekki að hanga mikið í  tölvunni (já, þið ráðið hvort að þið trúið þessu, að hin ofurtölvuháða Jóna geti verið lengi án tölvu! ;) ) já og ég gleymdi númer 2.. sorrý

annars er ómótstæðilega stutt í jólin! pakkaði inn jólagjöfunum sem ég keypti í dag og þá á ég bara eftir að pakka inn jólagjöfinni til Ma&Pa en hún kemur norður með Ástu

á morgun er ég að fara að spila í kirkju!! og komst að því í dag að ég á að spila voðalegt sóló í laginu sem ég var búin að steingleyma.. aah!!! óska hér með eftir lukku í krukku sem mun berast fyrir 20:30 annað kvöld! nú ef það gengur ekki upp er ég farin inn á Ak og drekki sorgum mínum í Sálinni..

Posted by Jóna Björg at 19:38:27 | Permanent Link | Comments (3) |

Friday, December 09, 2005

smá svindl

lofa allrusalegum svörum...


1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig

2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig

3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig

4 Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér

5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á

6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig

7. Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggið þitt

Posted by Jóna Björg at 19:23:00 | Permanent Link | Comments (22) |

Sunday, December 04, 2005

smá lífsmark

tók mér ofurlitla pásu í gærkvöldi og skellti mér í langþráð leikhús.
það er náttla bara Hilmir Snær sem getur haldið uppi heilli sýningu með 36 persónum.
mér fannst þetta alveg mögnuð sýning!!
Fór reyndar að spá í miðri sýningu hvort að Hilmir hefði nokkuð leitar til hennar Giselu Rabe-Stephan um að ná þýsk-íslenska hreimnum rétt. já, það var ekki beinlínis góð tilhugsun þegar Gisela stökk upp í hugann mér í miðri túlkun Hilmis á einum þekktasta klæðskiptingi í heimi... hehehehe

en já, en þó að það væri laugardagskvöld og ég stödd í miðbænum var víst ekki um annað að ræða en að hoppa upp í strætó og drífa sig heim.
en þó vildi svo til að ég eignaðist minn eigin strætóbíllstjórariddara! þannig var mál með vexti að ég þurfti að ná ná leið nr2 á hlemmi en vissi nú ekki alveg hvort ég næði honum, þannig að ég kalla til bílstjórans hvort ég nái nr2 ekki örugglega (kannski gott að segja að ég var eina manneskjan í strætónum), en hvað haldiði, til þess að ég myndi nú örugglega ekki sitja föst á Hlemmi, gefur maðurinn svona gríðarlega í, og svínar á fjölda strætó og keyrir fyrir strætóinn minn! já, riddaramennskan er greinilega á meðal strætóbílstjóra...
einnig fattaði ég af hverju bílstjórinn í nr. 2 horfir alltaf svona tómlega á mig þegar ég býð góðan daginn, hann er víst einn af þessum pólverjum sem voru að vinna á Kárahnjúkum og var svo plantað undir stýri á strætó. Hvernig ætli góðan daginn sé á pólsku? (maður verður nú að vera kurteis! :)


en jæja, ekki dugir að hanga lengur. Kröfurétturinn skilur sig víst ekki sjálfur (ekki það að ég skilji hann eitthvað frekar..)
en já, fyrst ég er farin að ræða námið þá hef ég flutt lögheimili mitt tímabundið. en það er í Kringlunni 1. en nei, ég vildi óska að það væri í Kringlunni sjálfri þar sem ég æddi milli búða með ótakmarkaða vísakortið mitt (je ræt) og verslaði eins og mér væri borgað fyrir það (enn þá meira je ræt). Nei, ég sit nú alla daga í yfirgefinni og svo að segja óupphitaðri prentsmiðju. ég var hinsvegar svo klár að finna mér sæti við ofn (eftir að viðskiptamörðurinn stal sætinu mínu og situr þar enn!) og er eiginlega bara nokkuð hlýtt. það eina sem mig vantar til að geta verið hérna allan sólarhringinn er slatti af klinki því hérna eru sjálfsalar sem geta séð manni fyrir öllum nauðsynjavörum (þ.e. kaffi, kóki, súpi, samlokum og nammi) lovin' it.  En nei, Enginn hraðbanki!


kv. Jóna Björg

p.s. miklu minna en vika í að ég fari heim!!
Posted by Jóna Björg at 15:02:27 | Permanent Link | Comments (7) |