Thursday, July 28, 2005

síðustu dagar, varúð, langt!!

seinustu dagar hafa bara verið helvíti skemmtilegir
á þriðjudaginn fögnuðum við 20 ára jarðvist hennar Guðfinnu og renndum í Skagafjörðinn, snillingunum mér og Ágústu, misstókst reyndar að tala okkur saman og þurftu hún og Fanney að bíða dágóða stund eftir að ég setti nýtt hraðamet á Landróver (án húss) á útkinnarveginum..
svo var raðað í bíla í Melasíðunni hjá Guffu og lenti ég í hinum rúmgóða bíl hjá Grjóna og var það ljóst þegar við höfðum keyrt í Skagafjörðinn að Grjóni þarf stærri bíl...

raftingið var alveg fjandi skemmtilegt og mig langar aftur, í eystri ána! þess ber auðvitað að geta að þetta varð keppni á milli stráka og stelpna, því annars er ekkert gaman og auðvitað hömsuðum við stelpurnar strákana og björguðum þeim einnig frá bráðum dauða..
eftir þessa skemmtilegu ferð þar sem Fanney bjargaði sér sjálf skelltu þeir sem höfðu sundföt meðferðis (meir að segja ég!) í heitan pott sem verður að teljast möst ef maður tók eitthvað á í raftinginu.. eins og ég :P
svo fengum við okkur sveittan mat í Varmahlíð enda áreiðanlega ófáum kalóríum verið brennt um daginn og svo brunað aftur til Akureyrar..

við ákváðum að setjast aðeins inn á Amour, þó ég hafi reyndar aldrei fýlað þann stað, þá er verið að breyta honum og ég held að ég gæti alveg hugsað mér að kíkja þangað, eins og gefur að skilja þá var mikið stuð á okkur, við að spila ólsen.
aðalskemmtiatriði, eða meira svona framhaldsþáttur kvöldsins sem var alveg æsispennandi var viðureign eins þjónsins við blindfullan mann, Kalla að nafni, ég held að hún hafi hent kallinum svona 25 sinnum út og alltaf varð kallinn jafnbrjálaður og reyndi alltaf að komast inn aftur. eins og ég segi, blindfullur, á þriðjudagskvöldi... jájá..
Jenný urðu svo á þau mistök að minnast á maður að nafni Gael væri líklega á næsta borði við okkur, Jóna, afar forvitin varð auðvitað að reyna að sjá hvort að það væri virkilega satt því Gael slagar án efa alveg upp í Jude Law auk þess sem ég hafði heyrt að væri á landinu... en nema hvað, ég sný baki í hann!
þannig að nú upphófust afar misheppnaðar tilraunir mínar til að snúa hausnum á mér um 180°, casually.. sem er ekki hægt.  Þannig að ég skipti um sæti, til að sjá beint á hann, en nei, þá er einhver kall á milli. og hausinn á honum fór akkúrat á milli.. pirrr.. þannig að ég tók Jenný bara trúanlega og segi öllum þeim sem heyra vilja að ég hafi setið á næsta borði við Gael!

skelltum við stelpurnar okkur (og Grjóni, sorry)á Amityville horror, sem var horror indeed og var það sko þolraun á símann minn því ég kreysti hann, fast í hvert einasta skipti sem ég varð hrædd, og það var oft! er ekki frá því að ný beygla hafi bæst við..
og þetta borgar maður fyrir, að láta hræða sig, brrr!! en alveg ágætis mynd.. þjónaði sínum tilgangi

þá var að skríða í bælið.. þar sem ég komst ekki heim hafði mér tekist að sníkja gistingu hjá Margréti og Gísla, því mikla heiðursfólki! og sú gisting var sko ekkert slor, uppbúið tvíbreitt rúm, með risasjónvarp með heimabíó (með Nemó í spilaranum fyrir litla hjartað mitt), en ein galli var reyndar á gjöf Njarðar.. það var kreisý köttur on the premesis og sá köttur ætlaði sko ekki að leyfa mér að sofna, fyrir utan að reyna að bíta mig og hoppa á mig, gerði hann mikið af óhljóðum sem eftir hryllingsmyndinu, gerðu mér ekki auðvelt að sofna. það endaði með því að kötturinn var læstur inn á baðherbergi eftir að hafa vakið hjónakornin... og ég náði að sofna!
eftir breakfast for champions á brúnni renndum við Dídí svo heim á leið þar sem mín beið grillveisla og barnaafmæli, ekki slæmt það, ha?
þetta var mikill hitadagur, að okkur fannst þannig að við "krakkarnir" (já, ok, ég og krakkarnir) fórum að vaða í Bjargarvatni... geðveikt gaman :D
en af því að vatnið var ekki eins volgt og við héldum þá vorum við ekki eins lengi en bættum það upp með því að fara í allsvakalegan vatnsslag í fjósinum, þar sem ég var vopnuð vatnsslöngum með svona vatnsbyssum á endanum..en varð samt rennandi blaut þess sem mér urðu á sú mistök að velja mér varnarstað niðrí mjaltagryfjunni sem er, eins og ég komst að, ekki góður staður til að verjast vatnsgusum. endaði þetta með því að ég yfirgaf stríðsgröfina mína og náði í stóra spúlinn og bleytti alla, til að ljúkadæminu :)
jæja.. held að þetta sé að verða upptalið hjá mér..
ja, nema hvað að allir á Björgum stungu af til Naustavíkur og ég var skilin ein eftir heima og ekki einu sinni spurð hvort að mig langaði líka heldur bara hlekkjuð við fjósið eins og aumasti þræll, hefndi mín með því að stela öllum lambalundunum  úr frystinum og éta þær... múha..
 
plön um versló er svo ekki alveg ákveðin, vona bara að fólkið dröslist tímanlega úr Naustavík svo ég geti skroppið til Ak á föstudaginn!

 já og hér er mynd af Gael... :)
Posted by Jóna Björg at 22:22:24 | Permanent Link | Comments (0) |

Sunday, July 24, 2005

crazyassbúlls

þessi sjón tók á mótí mér þegar ég mætti í fjósið áðan... sinnum fjórir!
í fjósinu voru lausir 4 bolar sem bíða slátrunar, held ég hafi sjaldan orðið eins hrædd..
þessi kvikindi geta ef þeir vilja leikið sér að því að kremja mann við vegg og þar sem ég stóð vopnuð heykvísl á móti snörlandi nautinu í orkusjokki af öllu kjarnfóðrinu er ekki laust við að nokkuð hafi farið um mig..
fyrir einskæra heppni og tilviljun höfðu þeir ekki sloppið útúr fjósinu eins og þeir hefðu getað gert, en gerðu þó nokkurn usla í fjósinu..
með mikilli úrræðasemi minni tókst mér að koma þeim aftur í spilið sitt og hófst þá aðgerðin: að róa hjartsláttinn..
álit mitt á nautgripum er ekki alveg í botni þessa daganna, en í gærkvöldi munaði minnstu að snarbrjálaðar kvígur slyppu lausar úr girðingunni og fyrr um kvöldið sparkaði ein kýr af öllum krafti í járnrör, og þumallinn á mér var á milli, held að ég hafi aldrei séð neitt bólgna eins hratt..
Posted by Jóna Björg at 23:26:02 | Permanent Link | Comments (0) |

Thursday, July 21, 2005

hvítt blóð

var sko bara að krúsa um á flotta kagganum mínum, með fm í botni og olnbogann út um gluggann þegar ég reykspólaði á gráu malbikinu... riiight..
hin rétta lýsing: jú, olnboginn var út um gluggann, kagginn var vörubíll, án útvarps og spólið var í drullusvaði...

skellti mér annars aðeins til Ak í dag til að kaupa sykur fyrir mömmu, og auðvitað sitthvað fleira og skellti mér svo í bíó á Sin City.. hvílík tær, fokking, amazing, vá, úff, æj, arrgh, góð mynd!!!!

skringilegheit dagsins var þegar ég var að keyra inn á Akureyri að þá var ég stoppuð á miðju víkurskarði og einhverjir dúdar með með skrifblokkir að skrá niður hvert fólk væri að fara, hvaðan og hvers vegna.. af hverju í fjandanum upp á miðju Víkurskarði?? og svo þegar ég var á leiðinni heim þegar klukkan var að verða 11 voru þeir ennþá þarna og ég mátti svara aftur, bót í máli var reyndar að sami gaurinn spurði mig í bæði skiptin og hann var nú ekkert ómyndarlegur og nokkuð kammó..

svo er fullt um að vera um helgina.. hér á ættaróðalinu verður haldið ættarmót og svo eru Eistlendingarnir á leið til landsins, en þó ég sé hætt í lúðrasveitinni, læt ég það ekki aftra mér frá því að hitta liðið (once a band-nerd, always a nerd..), hef heyrt því fleygt að þau komi með bús með sér og þar verði jafnvel VanaTallinn, the liköör með í för :P


Posted by Jóna Björg at 23:59:00 | Permanent Link | Comments (0) |

Monday, July 18, 2005

já en hann sagði..!

sá einhver fréttatilkynninguna frá Jude í dag?
hann sem sór fyrir það og lofaði að hann myndi aldrei segja frá þessu... ég sem lét mig hafa það að passa krakkarassgatið...
jæja... þá verð ég víst að finna mér aðra vinnu hjá Jude... hvað segiði um lögfræðing, vantar fólki ekki alltaf lögfræðinga?
Posted by Jóna Björg at 23:29:05 | Permanent Link | Comments (0) |

Sunday, July 17, 2005

reykjavíkin

góðann daginn
er stödd þessa daganna í Reykjavík, loksins eftir að slætti lauk.. og hef notið þess í botn að fá að að slappa af... :)
jú, að sjálfsögðu hefði ég getað slappað af heima hjá mér... en!
skellti mér á djammið með systur minni á föstudagskvöldið, borgaði 500 kall og fékk frían bjór eins og mig lysti og fékk meir að segja að blanda bollu og það mikið af henni.
en þrátt fyrir að vífilfell hefði gefið 10 kassa af bjór voru ennþá 5 kassar eftir þegar við snerum aftur daginn eftir til að laga til...

hef svo labbað kringluna og reðurinn (smáralindina) þvera og endilanga en ekki fundið mér neitt til að kaupa.. nema eina skó, sem ekki var ábætandi, þessir skór eru farnir að taka mesta plássið í fataskápnum mínum, en what the heck, ég keypti þá, þeir voru á svo góðu verði að mig langaði hreinlega í tvenna!

svo ætlum við að grilla og kíkja í bíó  í kvöld.. en ég hef ekki enn fengið sjá Sin City... en þar sem að litla systir er með í för er víst ekki viðeigandi að fara með nýfermt barnið á blóðuga, brútal og brillijant mynd eins og hún er auglýst..
kv. úr borginni                    
Posted by Jóna Björg at 14:26:22 | Permanent Link | Comments (1) |
1 2 3