jæææja..
vísindaferð í gær.. og hehehe.. ég og frítt áfengi eigum bara ekki saman! ekki slæmt samt að vera komin heim um miðnætti, algerlega hauslaus..
Hvenær er svo næsta vísindaferð?
Jæja...
er fyrstu vikunni nú lokið, já fyrir þá sem ekki vita, í lögfræðinni í HR og ég hlakka bara til þeirrar næstu! sem felur í sér að ég þarf að mæta þrjá daga í skólann! en ég ætla nú samt ekki að slæpast því það þarf að lesa og ég hef ekki hugsað mér að lenda mikið á eftir í lestrinum
Vonandi..
ég flyt svo vonandi inn í herbergið mitt á morgun og fæ þá vonandi líka að sofa í nýja rúminu mínu! en það er svo svo svo þægilegt að mig er hreinlega farið að syfja, bara með því að hugsa um það. en sumir gætu þá spurt, hvers vegna ertu ekki farin að sofa í því? þá segi ég: vegna þess að það er eitthvert milljón parkett á gólfinu og eikarfæturnir sex á undirdívaninum gætu rispað.. þannig að svo að það sé á hreinu fyrir komandi gesti (hopefully) að þeir þurfi að hafa meðferðis tvo púða og límband fyrir skankana á sér!
talandi um skanka...
nú hefur klinkklank hljóðið löngum verið algerlega í eigu kvenna sem ganga um á hælum. í gær tók ég eftir að klinkklank hljóðið hafði ágerst svo að munur heyrðist! já, þetta er ógnvænleg þróun! já, í gær, sá maður margan ungann manninn ganga stoltan um á támjóum þvísemnæst hælaskóm! vita þeir ekki að plássleysi táa er í beinum tengslum við kyngetu þeirra?
já, maður smyr sig!