Wednesday, September 28, 2005

einvera...

of...

Jóna Björg says:

jæja gamla.. þú varst klukkuð fyrir alveg löööngu síðan!
öldungar og fornminjar says:
ha?
öldungar og fornminjar says:
ertu að segja  að ég sé að deyja?
Jóna Björg says:
já, fyrir alveg laungu síðan!
öldungar og fornminjar says:
nei ég er nú ekki svo gömul...
Jóna Björg says:
ha, bíddu er þetta ekki Margrét Brynjólfsdóttir?
öldungar og fornminjar says:
NEI!!!!!!
öldungar og fornminjar says:
Margrét Brynjarsdóttir
Jóna Björg says:
nújá, þá er þetta allt annað mál... sú Margrét á ekki að fara uppfyrir/niðurfyrir fyrr en 42 ára...
öldungar og fornminjar says:
hehe hvað ertu að bulla
Jóna Björg says:
það varst þú sem byrjaðir!
öldungar og fornminjar says:
nei þú sagðir nánast við mig á ég væri undir grænni torfu!
Jóna Björg says:
hva, ertu Færeyingur?
Jóna Björg says:
nú eða tollinnheimtumaður (hef heyrt að þeir tali stundum múnísku..)
öldungar og fornminjar says:
fne!
Jóna Björg says:
já, færeyingur er það, ég þekki hross þegar ég sé það..
öldungar og fornminjar says:
ÞÚ SÉRÐ MIG EKKI!!!!!!!
Jóna Björg says:
einmitt..
Jóna Björg says:
hinsvegar sé hrossið alveg ágætlega hérna fyrir framan mig..
öldungar og fornminjar says:
þannig að ég er ekki hrossið sem þú sérð
Jóna Björg says:
það er naumast hvað sumir eru self-centered þessa daganna.. halda að það sé alltaf verið að tala um þá..
Jóna Björg says:
fnuss
Jóna Björg says:
eins og ég viti ekki vel að þú sért hross?
Jóna Björg says:
...ég meinti hið gagnstæða
öldungar og fornminjar says:
hvað er hið gagnstæða við hross? meri?
Jóna Björg says:
nei, hvað er málið.. það er spaðagosi..!!!
öldungar og fornminjar says:
hehe já auðvitað
öldungar og fornminjar says:
jú meik mí laf
Jóna Björg says:
hehehe, anytime
öldungar og fornminjar says:
árdís er hjá mér og hún gleymdi að fara í nærbuxurnar
Jóna Björg says:
tuff maður, það er ekkert, gleymdi einu sinni litlu tánni heima
Posted by Jóna Björg at 17:14:19 | Permanent Link | Comments (1) |

ævintýri helgarinnar

long time, no blog..
en það hefur líka verið ótrúlega mikið að gera undanfarið, á öllum sviðum lífsins.
sem stendur ætti ég að vera að læra heftið Yfirlit yfir helstu viðskiptabréfsreglur sem gilda um skuldabréf utanbókar, svona næstum því en það gengur bara óskaplega hægt, en hey! ég er þó með bókina opna fyrir framan mig, sem gæti orðið þess að efnið bara svífur upp i hausinn á mér.
En hva, síðasta helgi!     
Posted by Jóna Björg at 16:36:23 | Permanent Link | Comments (4) |

Thursday, September 22, 2005

úhjeyy

ég var klukkuð, I'm like, so Overexcited!
hmm, já, ég geri einmitt mikið af því að analyza mig og mínar, uhh, kenndir..

1. ég er obsessionist.. sem lýsir sér í því að ef ég fæ dálæti á einhverjum hlut, þá kynni ég mér hann ofan í kjölinn og ekkert, ég meina EKKERT getur staðið framar því og andstæðan má svo lúta í gras fyrir mér, þetta lýsir sér svo oft í því að ég lendi í harðvítugum deilum við fólk sem er ósammála mér og mér leiðist fátt meira en að tapa í svoleiðis. dæmi: MA versus VMA, Bretland versus USA, svart versus allir hinir ljótu litirnir,  HR versus HÍ og síðast en alls ekki síst, Michael Schumacher vs. hverjum þeim aula sem reyndi að sigra hann

2. hvernig ég tala, er býsna  viðkvæmt mál. fyrir utan að ég tala eins og afi minn (þetta var sérlega áberandi í grunnskóla). en hinsvegar bætir ekki úr hvað ég get verið svakalega málhölt! yfirleitt tekst mér ekki að böggla einni setningu útúr mér án þess að segja sko, eða þúst.
góð blanda? ,,Yfir voru ættarlandi sko, æ anna aldafaðir, þúst skildi halt" jáneinei

3. Þó ég segi öllum sem ég hitti (ok kannski ekki pabba og mömmu) að mér þyki Vodki vondur þá er sannleikurinn eiginlega gagnstæður, mér finnst hann eiginlega rosalega góður, málið er að vodki er ekkert sérlega góður við mig.

4. þegar ég var lítil átti ég ekki hamstur eða páfagauk fyrir gæludýr. Uppáhalds gæludýrið mitt var ein mjög svo skrítin hæna og kýrin Leista. Hinsvegar sá svo barnapían mín, Perla til þess að ég gerði ekkert stórkostlegt af mér enda er á fátt betra að treysta en hund!

5. ég leyfi mér að fullyrða að ég sé með afar sérstæðan tónlistarsmekk, þó án þess að setja út á aðra (minn smekkur er þó bestur). málið er bara að ég hef gaman að svo ægilega mörgu, í ponkulitla tónlistarsafninu mínu (ekki nema rúmlega 6 gíg) þá er meðal annars hægt að finna; Maus, Bach, Mínus, Ray Charles, Mariza Monte, Jeff Buckley, Á móti Sól, REM, Anna Katrín (úff já), Buena Vista, Bogomil Font og svooo framvegis! ég elska aalla, í tónlist!

jæja, þá er þessu af lokið! þá er bara að finna fólk til að klukka!
klukk á : Berglindi , Margréti Brynjars og Sigurdísi,

en að öðru!
ég er að öllum líkindum, vonani, óskandi og allt það á leiðinni norður í land á morgun (á eftir) ég býst fastlega við móttökunefnd og flottheitum.
Posted by Jóna Björg at 00:40:42 | Permanent Link | Comments (1) |

Saturday, September 17, 2005

Funifuni!

Jæja, fyrsta verkefnið var í gær og vá, pressa! verkefnið kom á mínútunni eitt og það kom dauðaþögn yfir allan hópvinnusalinn. Síðar meir fór fólk að rífast. Svo var klukkan orðin sex.
þetta er samt í sjálfu sér ekki svo slæm hugmynd, maður hefur verkefnið ekki hangandi yfir sér í tvær vikur og vinnur það svo rétt fyrir skilafrest. í rauninni er bara verið laga verkefnið að því hvernig fólk vinnur þau yfirleitt. þetta er samt ansi knappur tími og spurningarnar fengu ekki mikinn tima til að marinerast í hausnum á manni.
En gott að þessu er lokið, nú er bara að bíða eftir næstu verkefnum!
Við tók mun skemmtilegri hluti föstudagsins, að skella sér á djamm!


Posted by Jóna Björg at 18:28:38 | Permanent Link | Comments (2) |

Wednesday, September 14, 2005

kreppa..

ég er ekki alveg búin að læra inn á hvað maður ætti að skrifa í svona inngöngum, ætti ég bara að byrja blaðrið og skipta svo yfir í hitt þegar ég komin á flug?  eða hafa þetta svona summarize fyrir þá sem nenna ekki að lesa til enda? já þetta er erfitt..

Posted by Jóna Björg at 00:05:29 | Permanent Link | Comments (3) |
1 2