Tuesday, January 31, 2006

Naut stekkur upp í stúku


Sá frétt inn á vísi um að naut hefði stokkið upp í stúku á nautaati í Mexikó.
Minnugir muna eftir dálæti mínu á nautum.
Ég segi þetta aftur!
Don't mess with bulls! þetta mun enda með byltingu kusanna!







En jæja... verð samt að segja frá fyndnustu sjón morgunsins... þegar greyið allsberi maðurinn á jarðhæðinni var að reyna að draga niður "helv. gardínuna"
hahaha
Posted by Jóna Björg at 09:51:15 | Permanent Link | Comments (2) |

Friday, January 27, 2006

handbolti

ó dír lord! ég var búin að skrifa heljarinnar pistil! ég hélt að þetta gerðist bara á blog.central.! reyndar var þetta allt sjálfri mér að kenna...
here we go a again

þessa daganna er ég í 7unda himni því það er handboltakeppni í sjónvarpinu ! ég elskha handboltakeppnir, viðurkenni það fúslega að ég hef meiri áhuga á keppnunum þegar íslenska liðið er að keppa. ekki að spyrja að þjóðerniskenndinni!
þannig að þessa daganna sit ég límd við imbann með hnút í maganum af spenningi og ef spennan verður of mikil fer ég að hoppa uppúr sófanum.
Sakna reyndar pínu að geta ekki horft á þetta með pápa gamla, fátt skemmtilegra en að horfa á leik með pabba, ákveða viljandi að halda með hinu liðinu og svo kýtum við allan leikinn um hverslu lélegt hitt liðið er, nema auðvitað að íslenska liðið sé að keppa, þá höldum við bæði með því.. og pirrum hvort annað með einhverjum öðrum athugasemdum.. Mikil ástúð innan íslenska liðsin

Reyndar í gær, komst ég ekki nógu snemma heim í gær þannig að ég ákvað að hlusta á byrjunina á leiknum í útvarpi. þannig að ég sit í strætó að hlusta á handboltaleik (sjá lýsingu á undan, hvernig ég læt þegar ég horfi) og bið til guðs að enginn þekki mig þarna. ég vona að ég hafi náð að tempra helstu öskrin en meiru lofa ég ekki.
En hvern sé ég þegar ég fer úr strætónum, annan en Gest! þig bið ég innilega afsökunar á því að hafa þurft að sjá mig spassast í sætinu rétt fyrir framan þig! SowwY!
Posted by Jóna Björg at 23:09:35 | Permanent Link | Comments (1) |

Wednesday, January 25, 2006

The Mechanical Contrivium

Ten Top Trivia Tips about Jona!

  1. It can take Jona several days to move just through one tree!
  2. Red Jona at night, shepherd's delight. Red Jona at morning, shepherd's warning.
  3. Owls cannot move their eyes, because their eyeballs are shaped like Jona.
  4. Dolphins sleep at night just below the surface of Jona, and frequently rise to the surface for air.
  5. Jona is picked, sorted and packed entirely in the field.
  6. If you keep a goldfish in a dark room, it will eventually turn into Jona!
  7. Jona is the largest of Saturn's moons!
  8. The most dangerous form of Jona is the bicycle.
  9. Two thirds of the world's eggplant is grown in Jona.
  10. New Zealand was the first place to allow Jona to vote.
I am interested in - do tell me about
Posted by Jóna Björg at 18:53:24 | Permanent Link | Comments (2) |

Tuesday, January 24, 2006

tilraun

jæja, ég ákvað um daginn að ég skyldi hætta að nota hægri hendina á músina heldur þá vinstri. það sagði mér einhver að það væri voða sniðugt, því í raun og veru væru lyklaborð hönnuð fyrir það.
Sem er jú ágæt pæling því ef þú ert með vinstri hendina á músinni geturðu notað þá hægri til að slá á alla hinu sniðuga takkanna (t.d. tölurnar og örvarnar og allt það).
Nújæja, þannig að ég færði ofurflottu músina mína vinstra megin við tölvuna og ákvað að hætta bara kóldtörký og skipta.
Niðurstöður: eftir þrjár mínútur var vinstri hendin enn með músina en hægri hendin var byrjuð að stjórna músinni með touchpadinu.
Árangur tilraunar: enginn

Posted by Jóna Björg at 22:32:06 | Permanent Link | Comments (1) |

Saturday, January 21, 2006

Rósenberg á fimmtudegi

Fanney að taka lag eftir drottninguna Janis Joplin Loksins kom að því, Fanney er byrjuð að meika'ða
En hún kom fram á fimmtudagskvöldið með bandi sem heitir Mogadon (svefnlyf) og tók með þeim nokkur lög. ekki var að því að spyrja að mogadon vöktu þónokkra lukku en þakið ætlaði að rifna af kofanum þegar Fanney komst í mækinn.


Já, Fanney rocks! (nokkrar myndir hér til hliðar)

En lífið er víst ekki eintóm hamingja, því morguninn eftir þurfti ég að fara í jarðarför. ég hef ekki farið í margar jarðarfarir, sem betur fer. en það er alltaf jafn erfitt. sérstaklega þegar það er mikil eftirsjá í manneskjunni.
Það var samt gott að hitta mömmu og pabba aðeins, þau koma svo sjaldan í borgina.
Posted by Jóna Björg at 15:07:32 | Permanent Link | Comments (1) |
1 2