Monday, October 30, 2006

minimalist bloggarinn

úff, nú gæti ég bloggað af lífi og sál um það markverða sem gerst hefur.. t.d. þegar Þorgeir lenti í lífshættu, þegar ég flæktist ítrekað í köngulóarvefjum á Barnum, nýju diskoluvin' músina mína sem er væntanlega ættuð frá Las Vegas og þvílíkt góða indverska kjúllaréttinn sem ég eldaði.

en viti menn, I just did!

Stefni aftur á móti á birtingu tónlista á komandi misserum, þar eiga efst á blaði að vera Kaizers Orchestra, Damien Rice (nýr diskur!) og Jeff Who

..nema, ég get það ekki alveg strax.. amk ekki meðan Justin bölvaður helst e-n alltaf á þessum lista! 

Posted by Jóna Björg at 15:55:04 | Permanent Link | Comments (4) |

Tuesday, October 24, 2006

Tók út tónlistarlistann.. óþarfi að fólk geti lesið á netinu hvað ég er með hryllilegan tónlistarsmekk þessa daganna.. GarðarThorCortes og JustinTimberlake? ég hefði átt að tilkynna tónlistarsafnið stolið eða eitthvað! :O

Posted by Jóna Björg at 12:09:27 | Permanent Link | Comments (1) |

Wednesday, October 11, 2006

sarúsb

nú standa yfir miðannarpróf í elskulegu lögfræðinni. 

Þannig að, nú sit ég ennþá lengur en vanalega með Þorgeiri minum í lessalnum og grúska í glærum og glósum.

Eins og ég hef kannski minnst á, þá á ég við mína óskrifandi fötlun að stríða. Þannig að nú er ég með strengi í hægri hendinni eftir að hafa skrifað örfáar blaðsíður á 2 tímum í fyrradag.

En það sem mér þykir þó einna skondnast í þessu öllu, þegar ég skrifa með blýpennum eða pennum er skriftin mín fullkomnlega óskiljanleg. En þegar ég fann um daginn, blýanta sem eru ætlaðir til teiknunar, fór ég loksins að sjá út úr krassinu hjá mér. Sem auðvitað er laukrétt og rökrétt.  Auðvitað er þetta ekki skrift hjá mér, heldur tilraun til listsköpunar.


Posted by Jóna Björg at 16:13:29 | Permanent Link | Comments (4) |

Tuesday, October 03, 2006

Myndir

Myndir segja allt sem segja þarf um laugardagskvöldið.

Því bendi ég forvitnum (en jafnframt hugrökkum) að líta á álbúmið Álversveisla hér til hliðar.

Þessar myndir eru auðvitað teknar á gæðagræjuna simann minn og gæðin einmitt eftir því.

Engu að síður, hressar myndir! Laughing

Posted by Jóna Björg at 20:53:55 | Permanent Link | Comments (2) |

Monday, October 02, 2006

ástarjátning, skrifuð með glóð

ég sé það núna að brunasárið sem ég fékk um þarsíðustu helgi, hefur ekki verið slys.. heldur hefur einhver byrjað að reyna að skrifa nafnið sitt á handarbakið á mér - með glóð.
ég hef greininlega  verið eitthvað viðskotaill og  kippt að mér hendinni áður en símanúmerið var komið..

þannig að, einhver þarna úti, sem byrjar á L.. viltu fá númerið mitt á handarbakið á þér? Cool

Posted by Jóna Björg at 13:28:51 | Permanent Link | Comments (0) |