Wednesday, November 15, 2006

Fréttir les..

Jæja! Nú verða sagðar fréttir!

ég er hætt í HR! já, ég ákvað að hætta þessari vitleysu bara í bili og gera eitthvað skemmtilegt!

þannig að! ég fann mér vinnu. Á verkfræðistofunni Hnit.

og svo fann ég mér líka íbúð! sem ég er búin að vera að vinna eins og bavíani í ásamt meðleigendum mínum að gera íbúðarhæfa síðustu vikurnar.

í tilefni af því ætla ég svo norður á föstudaginn og verð þar til 26.nóvember (en þá á Berglind frænks einmitt afmæli, svo það sé á hreinu)

þannig er einmitt hægt með afleiðu að sjá hvers vegna ég hef ekki bloggað nýlega. >ég hef lítið verið í skólanum > ég hef verið að vinna í íbúðinni minni > það er ekkert net heima hjá mér > ég blogga ekki.

Annars er ég ansi fegin að vera að flytja úr hverfinu hennar ömmu. Fólkið sem gengur fram hjá eldhúsglugganum hennar ömmu og greyið póstberinn eru ábyggilega fegnari. í gær þegar ég dröslaðist loksins á fætur og var að finna mér föt í forstofunni hjá ömmu og var, aldrei þessu vant að tala við sjálfa mig (ég lofa, það gerist bara stundum!) þegar greyið póstberann ber að garði og skellir póstinum inn um lúguna. nema hvað, mér bregður svona líka! og rek upp skaðræðisgól! greyið póstberinn, þorir ábyggilega aldrei að bera út póstinn til ömmu.

 

 

Posted by Jóna Björg at 13:55:19 | Permanent Link | Comments (9) |