Tuesday, February 28, 2006

Hinn fullkomni partýleikur??

Ég er bara ekki frá því að þetta sé hinn fullkomni leikur! :P 

Posted by Jóna Björg at 12:34:24 | Permanent Link | Comments (0) |

Sunday, February 26, 2006

fnuss

mér leiðist ófskaplega þegar myndböndmánaðarinsdúddinn segir, "monnei" með hörðu ei-i og Matthjúv mcchonaGEY.

kannski ég ætti bara að hætta að horfa á sjónvarp? ekki slæm hugmynd.

merkilega róleg og viðburðalítil helgi.

helvítí góður fimmtudagur þó.

hjólaði einnig til reykjavíkur í dag og heimsótti ömmu mína í leiðinni. jú, bara helvíti fínt 

Posted by Jóna Björg at 00:28:11 | Permanent Link | Comments (4) |

Monday, February 20, 2006

Kid owned by his dad .::.

Kid owned by his dad


hló að þessu í gær...

í dag rakst ég innan þennan tengil... og tengdi ekki...
þannig að... tölvan mín fór á flug fyrir örfáum mínutum
... thank god fyrir að hún lenti aftur á lærunum á mér en ekki gólfinu...
Posted by Jóna Björg at 00:03:30 | Permanent Link | Comments (2) |

Tuesday, February 14, 2006

kitl?

Fuss! ég hef verið klukkuð tvisvar, ég ákvað að reyna að láta eins og ég hefði ekki séð fyrra klukkið, en þegar ég sá það seinna, varð mér ekki bært annað en að birta eitt stykki kitl eða klukk eða káf eða hvað sem þetta er!

Fjórir sjónvarpsþættir sem ég horfi alltaf á: (þetta er auðvelt!)

  1. Scrubs
  2. Gilmore girls
  3. Prison Break
  4. Lost (síðast en alls ekki síst!)


Fjögur störf sem ég hef unnið við

  1. Sveitastelpa (full vinna)
  2. Herbergisþerna (skrúbba klósett)
  3. Næturvörður (skrúbba enn fleiri klósett)
  4. Bústjóri (tvöföld vinna)

Fjórir staðir sem ég hef búið á:

  1. Björgum
  2. Mývatnssveit í tvö sumur
  3. Vistin í MA
  4. Blikahjallinn í Kópavogi

Fjórir staðir sem ég vildi frekar vera á:

  1. Heima í sveit
  2. sitjandi á kaffihúsi
  3. Englandi
  4. Englandi!
Fjórir staðir sem ég hef ferðast til:
  1. Danmörk
  2. Eistland
  3. Krít
  4. Noregur

Fjórar myndir sem ég gæti horft á aftur og aftur:

  1. Boondock Saints
  2. Sin City
  3. The Transporter (ég veit ekki af hverju!!)
  4. Se7en


Fjórar vefsíður sem ég fer á daglega:

  1. mbl.is
  2. gmail.com
  3. ru.is
  4. jonabjorg.blog.com

 

Fjórar bækur sem ég les oft: (les reyndar ekki margar bækur aftur)

  1. Dagbókin mín
  2. Lína Langsokkur
  3. Hr. Alheimur
  4. og hef svo undanfarið verið að glugga í Grágás, sú bók verður sko ekki lesin í einum rykk!


Fjórar uppáhalds matartegundirnar:

  1. Slátur með kartöflustöppu
  2. Lambalundir
  3. Skyr
  4. Búkolla


Fjórir geisladiskar sem ég gæti ekki verð án: (fjórir???? Bara fjórir?!!)

  1. Coldplay – Rush of blood to the head
  2. Jeff Buckley – Grace
  3. Placebo – Black market music
  4. Damien Rice – O
  5. Kaizers Orchestra – Evig Pint
  6. Sigurrós - Takk
  7. Jack Johnsson - In between dreams
  8. Þursaflokkurinn - Nútíminn
  9. Tenderfoot - Without Gravity
  10. Ske - Life, death, happiness and stuff
  11. Schpilkas - So long Sonja
  12. Mugison - Mugimama, is this monkey music?
  13. Broken Social Scene - you forgot it in people
Posted by Jóna Björg at 16:22:23 | Permanent Link | Comments (2) |

Tuesday, February 07, 2006

personality tests!

Jæja, ég tók enn eitt persónuleikaprófið um daginn, nema hvað að þetta skipti aldrei þessu vant nokkru máli.
Þetta persónuleika var próf í þeim tilgangi að skipta laganemum og viðskiptafræðinemum niður í hópa í áfanganum Stofnun fyrirtækja.
Innan þessa hópa, eða liða eins og konan vildi frekar kalla þetta, skipar fólk sér í hlutverk eftir því hvernig fólk getur staðið sig best.
þessi hlutverk eru 9 og geta verið
  1. formaðurinn - manneskjan sem þarf að stjórna öllu, með skipulagi og finnst ekkert gaman að breyta útaf skipulaginu
  2. Mótandinn - mér finnst, ég vil..
  3. Peran, en það er hugmyndasmiðurinn, "en hvað með þetta?"
  4. Greinandinn, manneskjan sem spyr ALLRA spurninganna, bíddu af hverju, hvað ertu aðmeina með þessu, nei, ég skil ekki alveg hvað þú ert að fara
  5. Framkvæmdinn - manneskjan sem lætur hlutina gerast "jæja! rumpum þessu af!"
  6. Tengillinn - veit hvar á að leita að hlutunum og þekkir alltaf einhvern sem veit eitthvað um eitthvað
  7. Liðsmaðurinn, sér um að fólkið vinni saman - "eru ekki allir í stuði?"
  8. Lokarinn - "nei, það á að vera punktur hérna, þetta á að vera í leturgerðinni Arial en ekki comic sans" - þetta er manneskjan sem setur the finishing touches á verkefnið
  9. Sérfræðingurinn - manneskjan sem veit allt um málið, ef það er á réttu sviði. leggur áherslu á tæknilega þætti.

og þá er spurningin, hvaða hlutverk ætli hafi hentað mér!!!
Posted by Jóna Björg at 12:20:50 | Permanent Link | Comments (0) |
1 2