Monday, May 22, 2006

sveitin

Var að lesa aðeins yfir gamla bloggið mitt.. og þá þótti mér augljóslega gaman að skrifa. verð að segja að ritgleðin skín úr hverju orði og frasar eins og "hauslaus önd" og hvaðeina fékk að fjúka.

These old times...

Er aftur komin í borgina, og það er næstum því eins kalt hér og heima, nema það er minni snjór
Fyrsta daginn heima fékk ég næstum sólsting, en því var ekki að skipta eftir það, nema að frostbit lét frekar kræla á sér.

Var titluð gúnga af 10 ára frænku minni fyrir að vilja ekki stinga hendinni inn í rollu. Ætlaði að ná henni með því að segja "gerð þú það þá bara" en það kom í bakið á mér, hún vílaði sér ekki við það og dró út tvö lömb! alveg sérdeilis efnileg lambaljósmóðir, 10 ára að aldri!

Fyrsti dagurinn í álverinu að baki, vinnuvélanámskeið, þetta sumar verður áhugavert -in a good way :)

 

Posted by Jóna Björg at 21:50:35 | Permanent Link | Comments (1) |

Tuesday, May 16, 2006

sveitailmurinn!

Ég sit núna uppí rúminu sem að amma mín og afi "sváfu" í fyrir ekki margt löngu síðan með lappann minn í þráðlausu nettengingunni og nýt útilyktarinnar úr nýþvegnu rúmfötunum, umm!

Hinsvegar er ég ENNÞÁ að pirra mig á flugferðinni síðan fyrr í dag, ég sat aftast í vélinni og þegar það var opnað út við lendingu byrja ég að labba áfram því það eru 18 manns í vélinni sem er ekkert hreyfa á sér rassgatið, en mig langaði heim! þá treðst einhver gömul kelling inn í ganginn og stoppar og stendur, tilgangur hennar augljós, að stöðva för mína. Hún tekur upp tal við manninn hinu megin vð ganginn og fer að tala um hvað hún þoli ekki þegar fólk sé að TROÐAST fram fyrir hana, hún sé framar í vélinni og eigi að fara fyrr út, hvað vissi hún um mig?  Kannski var ég á hraðferð á sjúkraleiði ömmu minnar, var að missa af rútunni, eða því um líkt?

ARgh , þoli ekki svona gamlar herfur! úff, þótt að ég sé búin að eiga yndislegt kvöld þá er þessi beygla ennþá að pirra mig!

Posted by Jóna Björg at 23:42:27 | Permanent Link | Comments (1) |

Monday, May 15, 2006

svo langt!

það er orðið ansi langt síðan hér hefur verið bloggað af viti, myndir sem mér þykja skemmtilegar/fyndnar teljast ekki sem almennileg blogg

þessa stundina sit ég inn á prikinu, nýbúin að jafna mig á mesta hristingi á gólfi sem mælst hefur síðan í suðurlandskjálftanum mikla, nema þessi hristingur stóð allt þar til ég fríkaði út og bað gaurana með eirðarlausu lappirnar á næsta borði að fá sér "vinsamlegast" rítalín eða ég myndi myrða þá!

Síðustu vikum hef ég eytt samfleytt með sama fólkinu við að vinna sveitta viðskiptaáætlun um mjólkurvörur fyrir börn, þessu verður svo öllu lokið á morgun er við kynnum frábæru hugmyndina okkar fyrir sýndarfjárfestum og stefnum við á að selja hugmyndina okkar fyrir milljarða króna!

að því loknu þarf ég svo að fremja nokkur kraftaverk, sem felast m.a. í því að koma mér einhvern vegin út í Straumsvík að sækja vinnuföt og því umlíkt, svo þarf ég að þvo ÖLL fötin mín og ná svo í flug um fimmleytið, gangi mér vel!

en kl. 17 held ég heim á leið, í langþráða þrælkun á vonandi græna dýrinu!

en fyrst ég er byrjuð að blogga á annað borð er ekki úr vegi að lýsa seinustu helgi að einhverju leyti (að því leyti sem ég man!).
Á föstudagskvöldinu fór ég ásamt stofnunfyrirtækjahópnum (nei, við höfðum ekki eytt nægum tíma saman) í vísindaferð í Sjálfstæðisflokkinn (!), nú má fólk hinsvegar ekki stökkva upp á nef sér og byrja að kalla mig sjálfstæðismanneskju (þó að á vissum tímapunkti hafi ég verið merkt honum með barmmerki) heldur ákvað ég að leyfa þessum greyjum að herja á mig með áróðri um Sundabraut, fjölskyldumál, skipulagsmál og annað kjaftæði sem mér er nokkuð sama um því að ég er ekki reykvíkingur. nei, þess í stað drakk ég bjórinn þeirra af miklum móð og skoðaði óvininn. Ég komst m.a. að því að

  • þó að nóg hafi verið af sjálfstæðisveigunum, var ekki nóg af sjálfstæðisklósett pappírnum.
  • 50 sæti handa 180 drukknum HR-ingum er ekki nóg.
  • Þó að bjórinn hafi verið í grænum dósum þá var klósettvatnið (ótrúlegt en satt) blátt!
  • Gísli Marteinn er alveg jafnlítill og hann lítur út fyrir að vera.
  • Ég talaði við áðurnefndan Gísla Martein, "ætlar þú ekki örugglega að kjósa Sjálfstæðisflokk" ég: "ughh.. ógleði, ógleði.. ehhh"

Eftir að hafa gert hetjulega tilraun til að klára Sjálfstæðisbjórinn hélt hinn vaski Stofnun fyrirtækjahópurinn í partý, þar sem við ætluðum að halda garð- og söngpartý. Sem endaði með því að fólk gat hvorki sungið né spilað á gítarna sína fyrir ölvun og aðrir fengu frostbit!
Eftir hafa komist að því ég var of full, ákvað ég að fara í göngutúr, rankaði við mér "guðveithvar" þá hringdi ég í fólkið mitt og lét vísa mér aftur í partýið!
Ákváðu þá illgjörnustu (uppfært!)menn (sem ég þekki) að ég skyldi taka bjór í trekt, eins og ég hafi ekki verið nógu ölvuð! Húseigandi fékk ókeypis bjórbónun á eldhúsgólfið sitt.

EFtir að hafa ætlað að fara niðrí bæ og strunsað aftur frá hópnum og þvælst inn á alltof leiðinlega staði, hélt ég heim, ölvaðri en þriggja ára Egill Skallagrímsson og var sofnuð kl. 02.

Þegar ég vaknaði um morguninn, ofþornuð eftir metþamb bjórs kvöldið áður og ekki kók í sómasamlegri fjarlægð, hélt ég mig eins lengi og lög leyfðu í rúminu, teljandi sjálfri mér trú um að þetta væri ekki versta þynnka lífs míns og horfði á ofursorglegar myndir um eílífðargarðyrkjumenn.

Þegar ég dröslaðist svo loksins fram úr rúminu beið mín grillveisla hjá , as I quoete herself "frekustu frænku minni" sem ég slapp svo naumlega frá og fór niður á laugaveg að halda partý ásamt hinum Snillingunum í stjórn FSS. Þar biðu mín 6 kassar af bjór og bolla sem hefði rotað naut á þriðja sopa fyrir 30 manns. Ég hinsvegar, tók þann pól í hæðina að reynast aumingji og bar fyrir mig fylleríi kvöldsins áður og fékk mér einungis afréttara í formi baneitraðra epla sem voru "forcefed" í munn mér allt kvöldið. Eftir að hafa hent skuggalegum gaur út og fengið á mig stimpilinn, bouncer, butch, bitch o.s.frv. og náð að koma út allri bollunni og bjórnum, ætlaði ég að halda heim á leið. En, nei ó nei. Þrátt fyrir allar mínar heiðarlegu tilraunir lá leið mín í Þjóðleikhúskjallarann þar sem sveittsveitt stuð var. Sem var þó eiginlega svolítið gaman!

Jæja nú fer að líða að lokum þessarar miklu frásagnar af helginni. Boðskapur hennar er, ekki vera aumingji Jóna, næst þegar þú verður ofurölvi af sjálfstæðisbjór er engin afsökun að detta ekki í það líka daginn eftir. afréttari dugir bara ekki til!

Jæja, eitthvað fleira hlýt ég að geta týnt til, til að geta gert þetta að lengsta pistli sögunnar!

í byrjun júní mun ég flytja að Sólvallagötunni og eyða sumrinu þar í félagsskap systur minnar. ég lofa grillpartýum í massavís (og auðvitað mun Ásta grilla, don't you worry!)

Sumrinu mun ég svo einnig eyða í Kerskála í Álverinu í Straumsvík, sweating me arse off.

ok, úff! pikk krampi nálgast óðfluga eftir brjálað pikk í 30 mín.

Vona að þetta komi nú bloggandanum í mér af stað á ný og ég eigi eftir að verða duglegri í sumar!

(vá, það munaði svona () miklu að pistillinn færi veg veraldar! en ég the never ending clever person hafði vit á því að taka afrit (reyndar bara til að geta talið orðin, en þau eru nákvæmlega 893 !

Posted by Jóna Björg at 20:52:19 | Permanent Link | Comments (3) |

Monday, May 08, 2006

nææææs!

Posted by Jóna Björg at 20:11:54 | Permanent Link | Comments (1) |

Wednesday, May 03, 2006

The Sexy Name Decoder

The Sexy Name Decoder Jewel Offering Naughty Affection
Posted by Jóna Björg at 19:25:51 | Permanent Link | Comments (0) |
1 2