Friday, June 23, 2006

nei

Auðvitað er ég ekki hætt að blogga.. fyrr frysi í youknowwhat

Einnig vil ég koma því á framfæri að það var ekki ég sem eyðilagði álverið...

Ég er held ég líka búin að koma frekar undarlega fram við marga vini mína.. ég mun bæta ráð mitt!

Vantar einnig sárlega draumráðningu, þrátt fyrir margar yfirlýsingar þess efnis að allir draumar séu bara bull og vitleysa.. þá langar mig að vita hvað þessi sérstaki draumur gæti þýtt..

Skrapp heim í sveit í góðan sólarhring og sýndi borgarDönum sveitina mína, átti ótrúlega góðan tíma, fór á hestbak í fyrsta skipti í mörg ár, heilsaði upp á kusurnar mínar og lömbin. Auðvitað má ekki gleyma Sokka sem er mjög merkilega haltur!

Er núna fljótlega á leiðinni í staffapartí (ál eiðinni híhíhíh), það verður væntanlega forvitnilegt á ný!

Svo er útskrift stóru systur á morgun úr Háskóla Íslands, mikil veisluhöld á morgun!

Cool -neihh, sko! það eru komnir broskallar á bloggið mitt!

 

Posted by Jóna Björg at 22:33:50 | Permanent Link | Comments (1) |

Tuesday, June 06, 2006

Svona leit stofan á Sólvallagötunni út þegar við vorum búnar að flytja allt dótið okkar. Inn í þessu herbergi átti ég að eyða nóttinni... 

Posted by Jóna Björg at 21:40:48 | Permanent Link | Comments (1) |

Thursday, June 01, 2006

ok.

Fullyrðing mín um að öll fötin mín komist auðveldlega í eina ferðatösku var kannski ekki alveg rétt..

þetta er allt í sömu töskunni, en auðvelt var það ekki.... 

Posted by Jóna Björg at 23:50:54 | Permanent Link | Comments (3) |

Álver, smálver

Jæja, fyrstu vaktasyrpunni í Álverinu lokið

Mér lýst nú bara ágætlega á þetta allt saman. ég verð þó að viðurkenna að þó að við séum alveg nokkrar stelpur þarna þá er þetta hreinræktaður kallavinnustaður. og alveg ótrúlegt hvað andrúmsloft á svoleiðis vinnustöðum er öðruvísi.

Eins og gefur að skilja þá er þetta 500 manna vinnustaður (eitthvað þvíumlíkt) en ég þarf sem betur fer ekki að læra 500 nöfn. Vaktin mín samanstendur af svona 20-30 manns sem vinnur alltaf á sama tíma, ég skal ná að muna öll nöfnin eftir sumarið (Já, Jóna, eins og það eigi ekki eftir að gerast..).

Gerði þau hrapallegu mistök í samtali við stelpurnar sem eru að vinna þarna, því ég sagði í kaldhæðni (eins og allt sem út úr kjafti mér vellur) að konur gætu notað þennan vinnustað til að ná sér í kall.
Með þessu leit út eins og ég væri komin í Álverið í þessum eina tilgangi.

Fimm mínútum seinna:

Ég: já, svo er ég að flytja inn í Reykjavík núna um helgina, ekkert smá sem maður verður lengi í vinnuna þá..
Steinunn: núú, já. (bendir), þetta er Gunni, hann býr í reykjavík, hann er á lausu.

Lesendur geta rétt ímyndað sér hvernig restin af vaktinni var.. nú veit ég allt um hjúskaparstöðu vinnufélaga minna...

Annars fagnaði ég lokum fyrstu vaktasyrpunnar harkalega í gær.. annað verður ekki sagt..
Í dag er í mér mikill sunnudagur...

Posted by Jóna Björg at 17:49:30 | Permanent Link | Comments (0) |