Monday, July 31, 2006

smá niðurtalning

Jæja..ekki úr vegi að setja smá niðurtalningar niður á skjá.

 

  • 21 dagur í að skólinn byrji á ný
  • 29 dagar þar til ég hætti í vinnunni (já, ég veit, smá conflict)
  • 17 dagar í að Dídí og Grjónið koma suður (nei, hún á ekki Asískan kall)
  • 11 dagar þar til Arna hættir í vinnunni sinni og fer að gera hvað?
  • 139 dagar til ég verð 21 (alltaf gott að vita það..)
  • 146 dagar í jólin
  • 1 dagur í bíó!
  • 1 næturvakt þar til ég er komin í frí
  • 4 dagar þar til ég byrja aftur að vinna
  • 19 dagar í Menningarnótt
  • þ.a.l. 19 dagar í langþráð djamm með Sigurdís (victorygoddes, get aldrei hætt að hlæja að þessu!)
  • 13 dagar í gay pride
  • 31 dagur þar til ég fæ næst útborgað
  • 0 dagar síðan ég keypti mér nýja skó, tvenn pör!
  • hmm, hvað fleira?
  • 3 dagar síðan ég kvartaði yfir því að málarinn sem stendur sveittur út á gangi að mála væri ekki nógu sætur, enn hefur ekkert gerst!

 

Posted by Jóna Björg at 21:48:48 | Permanent Link | Comments (2) |

Sunday, July 30, 2006

ég bara spyr?

Ætli prófessor emeritus sé að reyna að drýgja tekjurnar sínar frá HÍ? 

Posted by Jóna Björg at 17:24:18 | Permanent Link | Comments (3) |

Tuesday, July 25, 2006

the hillbilly outfit

Komst að því um helgina, mér til mikillar ánægju að nýju gleraugun passa lika við hillbilly átfittið (með hina bráðnauðsynlegu derhúfu included!)

Sveitin var að sjálfsögðu frábær. Mamma átti þó athugasemd dvalarinnar þegar hún var að keyra mig á flugvöllinn í gær "Já, Jóna mín, það er alltaf gott að fá þig heim í sveit, sérstaklega í svona nokkra daga, þá hlýðirðu því sem við segjum þér að gera!"

Fékk svo mjög góða heimsókn á sunnudaginn en Arna og Ragnar komu í heimsókn í sveitina. Og þó að Ragnar hafi gefið lítið fyrir dráttarvélaeign peyjanna á Nípá, þá er það allt í lagi, langar hvort sem er ekkert að hafa Örnu sem nágranna! Cool TAKK fyrir komuna!

Tók svo aðra skiptivakt í morgun, og í þetta skiptið á 5 vaktinni. fín vakt, allt þar til mér var rétt skófla og sagt að moka súráli, inn í kerjum! ég hef einungis eitt orð um það: HEITT!!!
Jæja, er farin að leggja mig, vinna í kvöld!

Posted by Jóna Björg at 19:01:11 | Permanent Link | Comments (0) |

Friday, July 21, 2006

Tvö lömb stóðu út á túni.

Allt í einu sagði annað lambið: "MEEEEE!!"

þá sagði hitt: "Akkúrat það sem ég var að hugsa!"

Posted by Jóna Björg at 17:32:56 | Permanent Link | Comments (0) |

Sunday, July 16, 2006

nýju gleraugun


hana nú..

Er aftur komin í borgina eftir að hafa skroppið heim í Björg í nokkra daga.

Það er alltaf gott að koma heim til sín, en í þetta skiptið var alveg óóótrúlega gott að komast heim, ég var einhvern vegin komin með upp í kok af bænum og þá er ekkert betra en að komast í sveitasæluna, skoppa upp í dráttarvél og njóta góða veðursins! verður ekki mikið betra Cool


En náði svo loksins í nýju gleraugun mín í gær, auðvitað lætur maður mynd fylgja

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég er auðvitað ekkert nema hressleikinn uppmálaður á þessari mynd, nýbúin á næturvakt í ástkæra álverinu og er að bíða eftir rútunni (ástæðan fyrir því að myndin er svarthvít er að ég var svo rauð í augunum að fólk gæti farið að halda ég hefði verið nýbúin að sprauta heróíni í augun á mér)...


Svo lítur útfyrir að ég muni ílengjast hér á Sólvallagötunni eitthvað fram eftir vetri en það góða í stöðunni er að eigendurnir eru hættir við að selja húsið, í bili. Þannig að ég er meira að segja þvi sem næst komin með nýjan leigjanda, sem ku vera ekki nein önnur en systir ofurmömmunar Ágústu, Sigrún

Þannig að núna eftir að ég var að skoða myndirnar af útigengna kettlingnum hennar Sveinbjargar þá er ég algjörlega veik fyrir að fá mér kött! Helst 7.. fyrr get ég ekki orðið "kaTtarkonan"

Posted by Jóna Björg at 20:53:00 | Permanent Link | Comments (2) |
1 2