síðustu dagar, varúð, langt!!
seinustu dagar hafa bara verið helvíti skemmtilegir
á þriðjudaginn fögnuðum við 20 ára jarðvist hennar Guðfinnu og renndum í Skagafjörðinn, snillingunum mér og Ágústu, misstókst reyndar að tala okkur saman og þurftu hún og Fanney að bíða dágóða stund eftir að ég setti nýtt hraðamet á Landróver (án húss) á útkinnarveginum..
svo var raðað í bíla í Melasíðunni hjá Guffu og lenti ég í hinum rúmgóða bíl hjá Grjóna og var það ljóst þegar við höfðum keyrt í Skagafjörðinn að Grjóni þarf stærri bíl...
raftingið var alveg fjandi skemmtilegt og mig langar aftur, í eystri ána! þess ber auðvitað að geta að þetta varð keppni á milli stráka og stelpna, því annars er ekkert gaman og auðvitað hömsuðum við stelpurnar strákana og björguðum þeim einnig frá bráðum dauða..
eftir þessa skemmtilegu ferð þar sem Fanney bjargaði sér sjálf skelltu þeir sem höfðu sundföt meðferðis (meir að segja ég!) í heitan pott sem verður að teljast möst ef maður tók eitthvað á í raftinginu.. eins og ég :P
svo fengum við okkur sveittan mat í Varmahlíð enda áreiðanlega ófáum kalóríum verið brennt um daginn og svo brunað aftur til Akureyrar..
við ákváðum að setjast aðeins inn á Amour, þó ég hafi reyndar aldrei fýlað þann stað, þá er verið að breyta honum og ég held að ég gæti alveg hugsað mér að kíkja þangað, eins og gefur að skilja þá var mikið stuð á okkur, við að spila ólsen.
aðalskemmtiatriði, eða meira svona framhaldsþáttur kvöldsins sem var alveg æsispennandi var viðureign eins þjónsins við blindfullan mann, Kalla að nafni, ég held að hún hafi hent kallinum svona 25 sinnum út og alltaf varð kallinn jafnbrjálaður og reyndi alltaf að komast inn aftur. eins og ég segi, blindfullur, á þriðjudagskvöldi... jájá..
Jenný urðu svo á þau mistök að minnast á maður að nafni Gael væri líklega á næsta borði við okkur, Jóna, afar forvitin varð auðvitað að reyna að sjá hvort að það væri virkilega satt því Gael slagar án efa alveg upp í Jude Law auk þess sem ég hafði heyrt að væri á landinu... en nema hvað, ég sný baki í hann!
þannig að nú upphófust afar misheppnaðar tilraunir mínar til að snúa hausnum á mér um 180°, casually.. sem er ekki hægt. Þannig að ég skipti um sæti, til að sjá beint á hann, en nei, þá er einhver kall á milli. og hausinn á honum fór akkúrat á milli.. pirrr.. þannig að ég tók Jenný bara trúanlega og segi öllum þeim sem heyra vilja að ég hafi setið á næsta borði við Gael!
skelltum við stelpurnar okkur (og Grjóni, sorry)á Amityville horror, sem var horror indeed og var það sko þolraun á símann minn því ég kreysti hann, fast í hvert einasta skipti sem ég varð hrædd, og það var oft! er ekki frá því að ný beygla hafi bæst við..
og þetta borgar maður fyrir, að láta hræða sig, brrr!! en alveg ágætis mynd.. þjónaði sínum tilgangi
þá var að skríða í bælið.. þar sem ég komst ekki heim hafði mér tekist að sníkja gistingu hjá Margréti og Gísla, því mikla heiðursfólki! og sú gisting var sko ekkert slor, uppbúið tvíbreitt rúm, með risasjónvarp með heimabíó (með Nemó í spilaranum fyrir litla hjartað mitt), en ein galli var reyndar á gjöf Njarðar.. það var kreisý köttur on the premesis og sá köttur ætlaði sko ekki að leyfa mér að sofna, fyrir utan að reyna að bíta mig og hoppa á mig, gerði hann mikið af óhljóðum sem eftir hryllingsmyndinu, gerðu mér ekki auðvelt að sofna. það endaði með því að kötturinn var læstur inn á baðherbergi eftir að hafa vakið hjónakornin... og ég náði að sofna!
eftir breakfast for champions á brúnni renndum við Dídí svo heim á leið þar sem mín beið grillveisla og barnaafmæli, ekki slæmt það, ha?
þetta var mikill hitadagur, að okkur fannst þannig að við "krakkarnir" (já, ok, ég og krakkarnir) fórum að vaða í Bjargarvatni... geðveikt gaman :D
en af því að vatnið var ekki eins volgt og við héldum þá vorum við ekki eins lengi en bættum það upp með því að fara í allsvakalegan vatnsslag í fjósinum, þar sem ég var vopnuð vatnsslöngum með svona vatnsbyssum á endanum..en varð samt rennandi blaut þess sem mér urðu á sú mistök að velja mér varnarstað niðrí mjaltagryfjunni sem er, eins og ég komst að, ekki góður staður til að verjast vatnsgusum. endaði þetta með því að ég yfirgaf stríðsgröfina mína og náði í stóra spúlinn og bleytti alla, til að ljúkadæminu :)
jæja.. held að þetta sé að verða upptalið hjá mér..
ja, nema hvað að allir á Björgum stungu af til Naustavíkur og ég var skilin ein eftir heima og ekki einu sinni spurð hvort að mig langaði líka heldur bara hlekkjuð við fjósið eins og aumasti þræll, hefndi mín með því að stela öllum lambalundunum úr frystinum og éta þær... múha..
plön um versló er svo ekki alveg ákveðin, vona bara að fólkið dröslist tímanlega úr Naustavík svo ég geti skroppið til Ak á föstudaginn!
já og hér er mynd af Gael... :)