kreppa..
ég er ekki alveg búin að læra inn á hvað maður ætti að skrifa í svona inngöngum, ætti ég bara að byrja blaðrið og skipta svo yfir í hitt þegar ég komin á flug? eða hafa þetta svona summarize fyrir þá sem nenna ekki að lesa til enda? já þetta er erfitt..
Er eins tónlistarlega vansæl og möguleiki er... iTunes er dáið. í það minnsta í tölvunni minni. Sem þýðir að ég þarf að kaupa mér nýja tölvu, sem deyr ekki útaf iTunes. hver vill gefa mér powerBook?
þanniger mál með vöxtum að ég ákvað að uppfæra iTunes á sunnudaginn var, nýtt útlit og svona, enda finnst mér alltaf svo gaman að uppfæra forrit, alltaf spennandi að sjá hvað hefur verið bætt og lagað. nema hvað, nú fór allt til fjandans. í fyrsta lagi gerði ég þau afdrifaríku mistök að leyfa setup-inu að eyða út þáverandi útgáfunni af iTunes, allt í góðu með það. nema þegar lokahnykkurinn er að koma í uppfærslunni, kemur blár skjár og tölvan endurræsir sig, þ.e.a.s. segja crashar!!!!
restin er augljós, ég næ ekki að setja upp nýju útgáfunna og ekki heldur þá gömlu! og bara við að það reyna að eyða út restinni af iTunes hrynur greyið tölvan! ég skil þetta bara ekki!
ég veit ekki hvað ég er búin að eyða mörgum klukkustundum í að uppfæra tónlistarsafnið mitt, búa til lagalista og þar fram eftir götunum!
hér ber hinsvegar að geta þess að tónlistarsafnið sjálft er ennþá til staðar...
þannig að nú þarf ég að nota tónlistarmartröðina Windows media player, sem er verkfæri farísea..
þessir dagar eru ekki mínir lukkudagar, ég missti símann minn í 693. skiptið í götunna í gær og akkúrat þá þurfti eitthvað slæmt að gerast, helvítis skjáyfirborðið brotnar..og höggið hefur eitthvað skekkt stýripinnan þannig að ég þarf næstum að nota sleggju á hann til að helvítið virki. awesome.
Akkúrat núna má Clive Owen taka sér frí frá því að vera mr. kynþokki og koma og hugga mig.
já, meiri biturleiki, ég komst ekki inn í háskólakórinn sem er reyndar alveg skiljanlegt miðað við hversu illa mér gekk í inntökuprufunum, en ég hefði samt alveg viljað komast inn. og nei, mig langar ekki í neinn annan kór.. ekki einu sinni þó hann væri í HR (sko það er ekki allt best við þann skóla).
en jæja jæja, eitthvað skemmtilegt hlýtur nú að hafa gerst þessa daganna, látum okkur sjá, duduruuu, heyrðu já, ég hef fundið skó lífsins! þeir eru gvöðdómlega flottir og kosta lítinn 12 þúsund kall! kaupi þá strax! ... þegar nýja greiðslukortatímabilið hefst!
Var að spjalla við frænku mína áðan sem er orðin sextán ára og er á háum punkti gelgjuskeiðsins, þó henni takist furðuvel að leyna því. En hún var s.s. að deila með mér þeim áhyggjum yfir því að henni skuli ekki kitla.
kvót: ,,Ég meina, spáðu í hvernig þetta verður þegar ég er komin með kærasta, það verður ekkert gaman hjá okkur af þvi mig kitlar ekki, hvað eigum við þá að gera?"
yes, that's what couples do, they tickle each other...

Clive þarf nú ekkert að taka sér frí frá kynþokkanum, mín vegna má hann og kynþokkinn koma í heimsókn! Nú eða gvöðdómlegastur nágranni þinn... ekki myndi ég kvarta ef ég væri þú! (Comment this)
já, einmitt, það yrði "áhugavert" að sjá mig ef bæði Clive Owen og kynþokkinn hans kæmu í heimsókn. Jóna: "udurrudddblaa, *slefslefslef* uhh, hi!!"
(Comment this)
step two: kaupa sjónauka
step three: tæla nágranna gegnum sjónauka
step four: losna við sönnunargögn áður en löggan brýst inn! (Comment this)