Thursday, September 22, 2005

úhjeyy

ég var klukkuð, I'm like, so Overexcited!
hmm, já, ég geri einmitt mikið af því að analyza mig og mínar, uhh, kenndir..

1. ég er obsessionist.. sem lýsir sér í því að ef ég fæ dálæti á einhverjum hlut, þá kynni ég mér hann ofan í kjölinn og ekkert, ég meina EKKERT getur staðið framar því og andstæðan má svo lúta í gras fyrir mér, þetta lýsir sér svo oft í því að ég lendi í harðvítugum deilum við fólk sem er ósammála mér og mér leiðist fátt meira en að tapa í svoleiðis. dæmi: MA versus VMA, Bretland versus USA, svart versus allir hinir ljótu litirnir,  HR versus HÍ og síðast en alls ekki síst, Michael Schumacher vs. hverjum þeim aula sem reyndi að sigra hann

2. hvernig ég tala, er býsna  viðkvæmt mál. fyrir utan að ég tala eins og afi minn (þetta var sérlega áberandi í grunnskóla). en hinsvegar bætir ekki úr hvað ég get verið svakalega málhölt! yfirleitt tekst mér ekki að böggla einni setningu útúr mér án þess að segja sko, eða þúst.
góð blanda? ,,Yfir voru ættarlandi sko, æ anna aldafaðir, þúst skildi halt" jáneinei

3. Þó ég segi öllum sem ég hitti (ok kannski ekki pabba og mömmu) að mér þyki Vodki vondur þá er sannleikurinn eiginlega gagnstæður, mér finnst hann eiginlega rosalega góður, málið er að vodki er ekkert sérlega góður við mig.

4. þegar ég var lítil átti ég ekki hamstur eða páfagauk fyrir gæludýr. Uppáhalds gæludýrið mitt var ein mjög svo skrítin hæna og kýrin Leista. Hinsvegar sá svo barnapían mín, Perla til þess að ég gerði ekkert stórkostlegt af mér enda er á fátt betra að treysta en hund!

5. ég leyfi mér að fullyrða að ég sé með afar sérstæðan tónlistarsmekk, þó án þess að setja út á aðra (minn smekkur er þó bestur). málið er bara að ég hef gaman að svo ægilega mörgu, í ponkulitla tónlistarsafninu mínu (ekki nema rúmlega 6 gíg) þá er meðal annars hægt að finna; Maus, Bach, Mínus, Ray Charles, Mariza Monte, Jeff Buckley, Á móti Sól, REM, Anna Katrín (úff já), Buena Vista, Bogomil Font og svooo framvegis! ég elska aalla, í tónlist!

jæja, þá er þessu af lokið! þá er bara að finna fólk til að klukka!
klukk á : Berglindi , Margréti Brynjars og Sigurdísi,

en að öðru!
ég er að öllum líkindum, vonani, óskandi og allt það á leiðinni norður í land á morgun (á eftir) ég býst fastlega við móttökunefnd og flottheitum.
Posted by Jóna Björg at 00:40:42 | Permanent Link | Comments (1) |
Comments
1 - aNNA katrín? (Comment this)

Written by: gudfinna at 2005/09/23 - 11:07:09
Write a comment