Wednesday, September 28, 2005

ævintýri helgarinnar

long time, no blog..
en það hefur líka verið ótrúlega mikið að gera undanfarið, á öllum sviðum lífsins.
sem stendur ætti ég að vera að læra heftið Yfirlit yfir helstu viðskiptabréfsreglur sem gilda um skuldabréf utanbókar, svona næstum því en það gengur bara óskaplega hægt, en hey! ég er þó með bókina opna fyrir framan mig, sem gæti orðið þess að efnið bara svífur upp i hausinn á mér.
En hva, síðasta helgi!     
sú helgi var miikið skrautleg! við komum norður á fimmtudeginum og ég dreif mig beina leið heim í sveit (svona næstum) og hvað það var gott að koma heim. :D
en á föstudagskvöldinu dreif ég mig í bæinn aftur og Arna, Berglind og ég fórum á djammið, að hætti þeirra vinkvenna, á Vélsmiðjunni! kíktum reyndar í heimsókn til hans Sindra bekkjarbróður, við lögfræðinemarnir skemmtum okkur svona ágætlega við að ræða lögfræði og þvíumlíkt, þó að hinum gestunum hafi kannski ekki likað eins vel, mesta afrekið var þó að ég smakkaði 96% áfengi and I live to tell!
jæja, þegar við höfðum loksins komist heim af skrallinu (með viðkomu í nætursölunni, að sjálfsögðu) og sofið í alltof fáa tíma, drifum við Arna okkur af stað í Laufskálarétt, vel búnar, hlífðarfötum, bjór og blandi! en ENGU búsi! því það uppgötvaðist að vodkinn var suður í Eyjafirði!
Laufskálarétt var alveg rosalega skemmtileg! þetta hefði einhver sem þekkir mig ekki búist við að heyra frá mér, hestahatanum sjálfum! en þetta var miklu skemmtilegra en ég hefði haldið, enda svosum ekki það ólíkt kindaréttum nema hvað að þetta er mun stærri rétt, stærri dýr og meira adrenalín. því það er ekki laust við að það hafi farið um mig  þónokkrum sinnum þegar maður sá einhvern öldunginn skjótast framhjá manni hangandi í faxinu á einhverju snarbrjáluðu hrossi! þá var nú bara óskup þægilegt að standa bara inn í einum dilknum í lopapeysu og kraftgallanum með bjór í hönd og vona að blessaðir hestarnir myndu nú ekki stökkva yfir veginn hjá manni.
þegar hlífðarfötin voru orðin óþægilega gegnblaut og köld fórum við að tygja okkur heim á leið, á stóra dodge-inum sem að vinur hennar Örnu bauð okkur far með, það var ekki amalegt að þurfa ekki að brjótast í gegnum hríðina/hundslappadrífuna/slydduna á einhverri dós. svo að ég tali nú ekki um að geta bara hreiðrað um sig í aftursætinu með bjór í hönd!
Nú þegar við komum aftur í bæinn, fórum við bara inn í sveit til að reyna slappa aðeins af og stefnan var svo sett inn í bæ, seinna um kvöldið.
til þess að láta ekki slá að sér var hollara að halda uppi drykkju ásamt því að verða algjörlega gjaldþrota í Monopoly, ég held að ég hafi aldrei verið eins ærlega rasskellt í þessu spili!
þegar líða tók á kvöldið fór mig að langa í bæinn, en nei, enginn var bílstjórinn, þegar ég áleit að alla von væri úti um að ég kæmist í bæinn ákvað ég bara að reyna að njóta kvöldsins og fara út í vodkann, hversu gáfulegt var það eiginlega! ljósið í eyðimörkinni var þó þegar stelpurnar ákváðu að sækja inn í fjörð og halda til gleðskapar.. þeir sem þekkja hinsvegar vodka  kaflana í lífi mínu hefðu mátt vita að fjörið entist ekki lengi, ég var komin heim klukkan tvö og sumir reyndust ansi fúlir út í mig fyrir duga ekki lengi, ég segi, don't blame me, blame the blo**** vodka!
með harðfylgi reif ég mig þó upp á sunnudagsmorguninn og hugðist halda suður, sem fyrst! en nei, allar vélar uppbókaðar og eftir nokkrar tilraunir ákvað ég bara að reyna á mánudagsmorgninum.
Alltaf eftir djamm, hef ég lagt það í vana minn að vekja Sigurdísi sem oftast, ég brá ekki útaf þeirri venju minni frekar en fyrri daginn og reif hana og Grjóna á fætur enda er það líka skoðun mín að fólki er ekki hollt að sofa of mikið ;)
en jæja, ég held að skýrslu helgarinnar sé þá líklega að fara að ljúka, ég verð þó að nefna ótrúlega fyndnar tilraunir annars vegar Sindra til að reyna að gera mig að sjálfstæðimanneskju (jú, Jóna, ég veit þú vilt það!?!) og hins vegar blinfulla alþingismannsins í nætursölunni Birkis Jóns (Jón Birkir?) til að láta mig ganga í framsóknarflokkinn (röfl, röfl, þvoglumælt eitthvað í Framsóknarflokkinn, röfl. þvoglumælt, laaangbesti flokkurinn!!)



Posted by Jóna Björg at 16:36:23 | Permanent Link | Comments (4) |
Comments
1 - Jóna, ertu nokkuð að skemmast í lögfræðinni???? =/ Ekki skemmast! (Comment this)

Written by: Sveinbjörg at 2005/09/28 - 21:25:01
2 - guuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuuulaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaar buuuuuuuuuuuuuxuuuuuuuuuuur! Rest my case! (Comment this)

Written by: Nýbúinn í Reykjavík, fyrrum einbúinn í Eyjafirði at 2005/09/28 - 21:27:46
3 - já, ég óska hér með eftir Gulu buxunum (með öllu inniföldu) í afmælisgjöf! takk fyrir takk! :P

og jæks, ég sem er ekki einu sinni búin að birta skemmda pistilinn minn!! (hann var einfaldlega of skemmdur!) (Comment this)

Written by: Jóna Björ at 2005/09/28 - 21:41:26
4 - Jóna Björ..... er það dulnefni fyrir BJÓR ? (Comment this)

Written by: Nýbúinn í Reykjavík, fyrrum einbúinn í Eyjafirði at 2005/09/28 - 22:44:39
Write a comment