Sunday, December 04, 2005

smá lífsmark

tók mér ofurlitla pásu í gærkvöldi og skellti mér í langþráð leikhús.
það er náttla bara Hilmir Snær sem getur haldið uppi heilli sýningu með 36 persónum.
mér fannst þetta alveg mögnuð sýning!!
Fór reyndar að spá í miðri sýningu hvort að Hilmir hefði nokkuð leitar til hennar Giselu Rabe-Stephan um að ná þýsk-íslenska hreimnum rétt. já, það var ekki beinlínis góð tilhugsun þegar Gisela stökk upp í hugann mér í miðri túlkun Hilmis á einum þekktasta klæðskiptingi í heimi... hehehehe

en já, en þó að það væri laugardagskvöld og ég stödd í miðbænum var víst ekki um annað að ræða en að hoppa upp í strætó og drífa sig heim.
en þó vildi svo til að ég eignaðist minn eigin strætóbíllstjórariddara! þannig var mál með vexti að ég þurfti að ná ná leið nr2 á hlemmi en vissi nú ekki alveg hvort ég næði honum, þannig að ég kalla til bílstjórans hvort ég nái nr2 ekki örugglega (kannski gott að segja að ég var eina manneskjan í strætónum), en hvað haldiði, til þess að ég myndi nú örugglega ekki sitja föst á Hlemmi, gefur maðurinn svona gríðarlega í, og svínar á fjölda strætó og keyrir fyrir strætóinn minn! já, riddaramennskan er greinilega á meðal strætóbílstjóra...
einnig fattaði ég af hverju bílstjórinn í nr. 2 horfir alltaf svona tómlega á mig þegar ég býð góðan daginn, hann er víst einn af þessum pólverjum sem voru að vinna á Kárahnjúkum og var svo plantað undir stýri á strætó. Hvernig ætli góðan daginn sé á pólsku? (maður verður nú að vera kurteis! :)


en jæja, ekki dugir að hanga lengur. Kröfurétturinn skilur sig víst ekki sjálfur (ekki það að ég skilji hann eitthvað frekar..)
en já, fyrst ég er farin að ræða námið þá hef ég flutt lögheimili mitt tímabundið. en það er í Kringlunni 1. en nei, ég vildi óska að það væri í Kringlunni sjálfri þar sem ég æddi milli búða með ótakmarkaða vísakortið mitt (je ræt) og verslaði eins og mér væri borgað fyrir það (enn þá meira je ræt). Nei, ég sit nú alla daga í yfirgefinni og svo að segja óupphitaðri prentsmiðju. ég var hinsvegar svo klár að finna mér sæti við ofn (eftir að viðskiptamörðurinn stal sætinu mínu og situr þar enn!) og er eiginlega bara nokkuð hlýtt. það eina sem mig vantar til að geta verið hérna allan sólarhringinn er slatti af klinki því hérna eru sjálfsalar sem geta séð manni fyrir öllum nauðsynjavörum (þ.e. kaffi, kóki, súpi, samlokum og nammi) lovin' it.  En nei, Enginn hraðbanki!


kv. Jóna Björg

p.s. miklu minna en vika í að ég fari heim!!
Posted by Jóna Björg at 15:02:27 | Permanent Link | Comments (7) |
Comments
1 - Ég er heldur betur búin að heyra skiptar skoðanir um þetta leikrit!! Mamma og Ásta voru að morkna úr leiðindum og móðir mín, leikhúsfíkillinn sjálfur, SOFNAÐI!!! Svo sögðu þær mér að síðasta röðin hefði ekki komið aftur eftir hlé!

Eníveis, kröfuréttur á rauðum blaðsíðum er EKKI að gera sig! most boring ever! Held að "FreeCell"kapallinn hafi aldrei verið jafnskemmtilegur og ég er pro í þessu núna!

verðum í el bandós,

Bojj (Comment this)

Written by: Nýbúinn í Reykjavík at 2005/12/04 - 16:56:38
2 - Vá hvað ég hata orðið kröfuréttur!!!!! ne ég elska þig
 (Comment this)

Written by: Antwoooon at 2005/12/04 - 22:29:19
3 - sæl elskan! :) ég er ekkert að botna í þessu með hvar þú ert stödd... enþaðeralltílagi (Comment this)

Written by: Kata at 2005/12/06 - 22:15:14
4 - yfirgefin prentsmiðja segiru... (Comment this)

Written by: Elín Auður at 2005/12/07 - 11:17:15
5 - hehehehe, yfirgefna prentsmiðjan er hús við hliðina á Kringlunni, svokallað morgunblaðshús þar sem lærdómsaðstaða HR-inga.
en það dugar ekki að hugsa um það lengur, ég ætla ekki að stinga höfði mínu þangað inn fyrr en í fyrsta lagi í janúar!
ahh, wúú húúúu!!

er með feitan pistil sem bíður í fartölvunni heima... bíðið spennt. hmmm eða ekki, það hló enginn að strætóriddarasögunni minni! kannski fer ég bara í bloggfýlu? fnuss! (Comment this)

Written by: Jóna sem er búin í prófum at 2005/12/07 - 12:25:04
6 - Gisela var bara svöl!
OG litla helvítið þú að vera komin í jólafrí: til hamingju með það samt;)

 (Comment this)

Written by: kolbrún ýrr at 2005/12/07 - 12:53:21
7 - Lífsmark MY ASS!!!! Þetta er dautt blogg! DEAD I SAY!

Vertu duglegri Djóní mín! (Comment this)

Written by: Nýbúinn í Reykjavík at 2005/12/09 - 14:52:42
Write a comment