jæja, þá er ég búin að vera í sveitinnni í ca. viku.
ekki svosum margt brjálæðislega fréttnæmt, nema ef það teldist með að kusan Bót bar í dag og skemmdi þar með veðmálið mitt um að hún myndi bera á morgun sem hefði verið mun skemmtilegra! en ég hef Bleikju til að treysta á að hún skjóti einum kálfi úr sér á morgun ;)
annars kláruðum við pabbi að rýja um daginn, verkaskiptingin var þannig að pabbi rúði og ég kom einu sinni inní fjárhúsin og sagði hæ. við mamma byrjuðum einnig að baka, ég smakkaði og mamma bakaði
frábær verkaskipting!
annars er ég útúrreyktari en versti rastafari þessa daganna! magnaður skítur alveg hreint. í alvöru.
við erum að reykja kjöt og ég fæ þann heiður að bæta á eldinn nokkrum sinnum á dag, þannig að ef vel tekst til, brýst ég í gegnum reykinn í pínulitla reykhúsinu okkar, kveiki á vasaljósinu sem ég er með, finn skófluna (sem ég fatta aldrei að setja á sama stað) og byrja að moka til öskunni og glóðinni, sem jú enn rýkur úr og bæti svo eins mörgum taðflögum (sem flestir ættu nú að vita að er þurrkaður skítur!) á eldinn og ég get. Svo þarf ég þó aðeins að bíða og athuga hvort það komi nú örugglega ekki nægur reykur.
svo viðheldur reyklyktin af mér rússinu þangað til ég bæti á næst! heheheh
en annars hef ég ekki nennt að blogga mikið í fyrsta lagi vegna þess að Eva mín er ekki nettengd og auk þess nenni ég ekki að hanga mikið í tölvunni (já, þið ráðið hvort að þið trúið þessu, að hin ofurtölvuháða Jóna geti verið lengi án tölvu! ;) ) já og ég gleymdi númer 2.. sorrý
annars er ómótstæðilega stutt í jólin! pakkaði inn jólagjöfunum sem ég keypti í dag og þá á ég bara eftir að pakka inn jólagjöfinni til Ma&Pa en hún kemur norður með Ástu
á morgun er ég að fara að spila í kirkju!! og komst að því í dag að ég á að spila voðalegt sóló í laginu sem ég var búin að steingleyma.. aah!!! óska hér með eftir lukku í krukku sem mun berast fyrir 20:30 annað kvöld! nú ef það gengur ekki upp er ég farin inn á Ak og drekki sorgum mínum í Sálinni..

Við áttum nú okkar stundir í þessum fræga reykkofa hehehe...
djöfull langar mig að fara að koma í sveitina...og anda að mér almenninlegu lofti...úfff (Comment this)
Kusa um kusu frá kusu til .... bjór! (Comment this)