Rósenberg á fimmtudegi
Loksins kom að því, Fanney er byrjuð að meika'ðaEn hún kom fram á fimmtudagskvöldið með bandi sem heitir Mogadon (svefnlyf) og tók með þeim nokkur lög. ekki var að því að spyrja að mogadon vöktu þónokkra lukku en þakið ætlaði að rifna af kofanum þegar Fanney komst í mækinn.
Já, Fanney rocks! (nokkrar myndir hér til hliðar)
En lífið er víst ekki eintóm hamingja, því morguninn eftir þurfti ég að fara í jarðarför. ég hef ekki farið í margar jarðarfarir, sem betur fer. en það er alltaf jafn erfitt. sérstaklega þegar það er mikil eftirsjá í manneskjunni.
Það var samt gott að hitta mömmu og pabba aðeins, þau koma svo sjaldan í borgina.
