handbolti
ó dír lord! ég var búin að skrifa heljarinnar pistil! ég hélt að þetta gerðist bara á blog.central.! reyndar var þetta allt sjálfri mér að kenna...
here we go a again
þessa daganna er ég í 7unda himni því það er handboltakeppni í sjónvarpinu ! ég elskha handboltakeppnir, viðurkenni það fúslega að ég hef meiri áhuga á keppnunum þegar íslenska liðið er að keppa. ekki að spyrja að þjóðerniskenndinni!
þannig að þessa daganna sit ég límd við imbann með hnút í maganum af spenningi og ef spennan verður of mikil fer ég að hoppa uppúr sófanum.
Sakna reyndar pínu að geta ekki horft á þetta með pápa gamla, fátt skemmtilegra en að horfa á leik með pabba, ákveða viljandi að halda með hinu liðinu og svo kýtum við allan leikinn um hverslu lélegt hitt liðið er, nema auðvitað að íslenska liðið sé að keppa, þá höldum við bæði með því.. og pirrum hvort annað með einhverjum öðrum athugasemdum..
Reyndar í gær, komst ég ekki nógu snemma heim í gær þannig að ég ákvað að hlusta á byrjunina á leiknum í útvarpi. þannig að ég sit í strætó að hlusta á handboltaleik (sjá lýsingu á undan, hvernig ég læt þegar ég horfi) og bið til guðs að enginn þekki mig þarna. ég vona að ég hafi náð að tempra helstu öskrin en meiru lofa ég ekki.
En hvern sé ég þegar ég fer úr strætónum, annan en Gest! þig bið ég innilega afsökunar á því að hafa þurft að sjá mig spassast í sætinu rétt fyrir framan þig! SowwY!

Annars lenti ég í ömurlegu atviki í gær. ég skrapp aðeins niður í bæ eftir leikinn og hitti Fanneyju og hennar nýja Có! (hafði reyndar hitt hann áður, en þá var hann ekki hennar có ;))
Fékk kókó með kahlúa, umm!
en ákvað svo eftir að hafa hlustað á nokkur lög með Andreu Gylfa á Rósenberg ákvað ég nú að drífa mig heim og tek strætó niður í Mjódd
en þegar í Mjódd er komið, kemst ég að því að allar leiðir sem ganga í Kópavog eru hættar að ganga!
aaaaaaargh *censored* argh! þá var líka of seint að reyna að taka einhvern strætó úr Mjódd niður í bæ aftur og ná strætó sem gengi í Kópavog. þannig að ég mátti labba heim!
Þetta er reyndar ekki löng leið, en hún lengdist ansi mikið fyrst ég rataði ekki skít!
Eftir miklar hremmingar komst ég reyndar heim, hundblaut, því jú, auðvitað rigndi, eins og alltaf í Reykjavík.
Eitt kvartelsi! það eru ekki margir gangstígar sem tengja saman Breiðholtið og Kópavog, ég amk fann enga! en það var ekki að því að spyrja að þegar ég komst í kópavoginn fann ég göngustíg sem lá beina leið heim til mín. já það ER gott að búa í Kópavogi!
en nonoh! rakst inn á mbl.is áðan ég var að leita að mynd af hönký handboltagaur til að skella hérna inn og sá þá frétt um að það sé búið að svipta Herra Ísland titilinum. í fréttinni er eitthvað talað um að herra ísland skuli lifa heilbrigðu líferni og vandaða hegðun. Eitthvað hefur nú strákurinn gert af sér?
þannig að sonur landsliðsþjálfarans Viggós fær þá dolluna eftir allt saman, keppnisskapið loksins að skila sér..