Tuesday, February 07, 2006

personality tests!

Jæja, ég tók enn eitt persónuleikaprófið um daginn, nema hvað að þetta skipti aldrei þessu vant nokkru máli.
Þetta persónuleika var próf í þeim tilgangi að skipta laganemum og viðskiptafræðinemum niður í hópa í áfanganum Stofnun fyrirtækja.
Innan þessa hópa, eða liða eins og konan vildi frekar kalla þetta, skipar fólk sér í hlutverk eftir því hvernig fólk getur staðið sig best.
þessi hlutverk eru 9 og geta verið
  1. formaðurinn - manneskjan sem þarf að stjórna öllu, með skipulagi og finnst ekkert gaman að breyta útaf skipulaginu
  2. Mótandinn - mér finnst, ég vil..
  3. Peran, en það er hugmyndasmiðurinn, "en hvað með þetta?"
  4. Greinandinn, manneskjan sem spyr ALLRA spurninganna, bíddu af hverju, hvað ertu aðmeina með þessu, nei, ég skil ekki alveg hvað þú ert að fara
  5. Framkvæmdinn - manneskjan sem lætur hlutina gerast "jæja! rumpum þessu af!"
  6. Tengillinn - veit hvar á að leita að hlutunum og þekkir alltaf einhvern sem veit eitthvað um eitthvað
  7. Liðsmaðurinn, sér um að fólkið vinni saman - "eru ekki allir í stuði?"
  8. Lokarinn - "nei, það á að vera punktur hérna, þetta á að vera í leturgerðinni Arial en ekki comic sans" - þetta er manneskjan sem setur the finishing touches á verkefnið
  9. Sérfræðingurinn - manneskjan sem veit allt um málið, ef það er á réttu sviði. leggur áherslu á tæknilega þætti.

og þá er spurningin, hvaða hlutverk ætli hafi hentað mér!!!




já, það eru s.s. tvö hlutverk sem koma til greina hjá mér.
Draumahlutverkið með fullu húsi stiga er s.s. Sérfræðingurinn

  • Dyggur einstaklingur sem hefur mikinn metnað til þess að auka sérhæfni sína og sérþekkingu
  • Einbeittur, ákafur og sjálf-drifinn
  • Faglegur metnaður skipar stóran sess og hann stendur vörð um sitt sérsvið en getur sýnt fólki á öðrum sviðum tómlæti
  • Sérfræðingurinn verður sérfræðingur vegna ódrepandi áhuga á einu sérsviði Ekki margir sem hafa einbeitingu og hæfni til þess að verða fyrsta flokks sérfræðingar
Hlutverk í liði
  • Sérfræðingurinn er sjálfum sér nógur og þarf oft töluvert svigrúm í liðinu.
  • Er ómissandi í sumum hópum þar sem þeir hafa afgerandi þekkingu á tiltekinni starfsemi.
En sérfræðingar eru víst ekki gallalausir.. það eru líka gefnir upp veikleikar
  • Tekur stundum ekki tillit til þátta utan hæfnissviðs síns.
  • Kemur eingöngu með framlag á þröngu sviði og leggur áherslu á tæknilega þætti.
Já, þetta er s.s. besta hlutverkið fyrir mig.. en hinsvegar ef það er ekki fundið verkefni á mínu sérsviði (whatever that is) þá yrði ég vita gagnlaus..
þá get ég líka verið Mótandi sem hentar mér alveg prýðilega líka... MÉR FINNST! ;)

nú ef allt þrýtur, get ég líka verið Lokarinn, (complete finisher), en það hlutverk þekki ég reyndar af góðri raun..

þau hlutverk sem henta mér svo verst eru Liðsmaðurinn (bíddu, sjáið þið mig ekki fyrir ykkur sem hressa liðsmanninn, ha?) og tengslamanneskjan (piff ég þekki víst, fullt af fólki).

svo kemur bara í ljós hvernig gengur!

Later

Update: Svo virðist sem það komi sumstðar einhverjir kóðar og læti þar sem ég hef verið að kópera texta. Fyrir þá vitleysinga hef ég eina einfalda lausn! Fáið ykkur FIREFOX!
Posted by Jóna Björg at 12:20:50 | Permanent Link | Comments (0) |
Comments
Write a comment