já, auðvitað myndi bara dóninn ég birta mynd af sérsveitarmanni í strætó.skamm jóna skamm
ég gafst upp á því að vera leyniaðdáandi hljómsveitarinnar 'í svörtum fötum' um helgina, reyndar er það óljóst hversu mikill leyniaðdáandi ég var, mér hefur alltaf fundist þeir æði. þannig að það var ekki annað hægt en að fara loksins á ball með þeim í vetur, hið fyrsta sunnan heiða!
þetta var helvíti gaman, næstum því eins og að djamma með sigurdísi, nema hún var aðeins eldri og hét Hildur!
fór í ævintýraferð alla leið út í Hafnarfjörð í gær, í strætó að sjálfsögðu, á peysunni í grilljón stiga frosti! allt til þess að hitta Ágústu og nýjasta gefass-meðliminn, Freyju sem er sú sætasta hingað til ;)
þó svo að ég sé hætt að fela aðdáun mína á í svörtum fötum munu þeir ekki komast á næstunni í Þorgeir (nýja tölvan). Joaquin Phoenix í gervi Johnny Cash ræður nú rækjum og kántrýið hljómar dátt í eyrum mér!
Var svo líka aðeins að laga til í tenglunum hjá mér og bætti inn nýjum tenglaflokki þar sem börnin öll fengu nú loksins pláss, nóg er til af þeim!
Og fyrst ég var byrjuð að vesenast á þessu bloggi mínu, sem ég er þó algjörlega búin að fá nóg af og langar að skipta um vettvang sem fyrst!, þá skellti ég inn ÖRfáum myndum frá helginni. (já, í tilefni þess að ég er orðin amk 3 ára bloggari þá ætla ég að fá mér alvöru bloggsíðu innan tíðar sem yrði á slóðinni bjorgum.is)

Svo flottir!
svo er restin undir 22.mars hér til hliðar <<<<<

Joaquin er helv. góður bara. Ef þú vilt verða svona "fullorðins" í köntrí dæminu þá veit ég fínan pikköpp fyrir þig, hann er að fara í allsherjar yfirhalningu. Ég veit þetta er enginn Land rover en það er bæði hægt að geyma rollur inn í pikköppnum OG á pallinum.. (Comment this)