Tuesday, May 16, 2006

sveitailmurinn!

Ég sit núna uppí rúminu sem að amma mín og afi "sváfu" í fyrir ekki margt löngu síðan með lappann minn í þráðlausu nettengingunni og nýt útilyktarinnar úr nýþvegnu rúmfötunum, umm!

Hinsvegar er ég ENNÞÁ að pirra mig á flugferðinni síðan fyrr í dag, ég sat aftast í vélinni og þegar það var opnað út við lendingu byrja ég að labba áfram því það eru 18 manns í vélinni sem er ekkert hreyfa á sér rassgatið, en mig langaði heim! þá treðst einhver gömul kelling inn í ganginn og stoppar og stendur, tilgangur hennar augljós, að stöðva för mína. Hún tekur upp tal við manninn hinu megin vð ganginn og fer að tala um hvað hún þoli ekki þegar fólk sé að TROÐAST fram fyrir hana, hún sé framar í vélinni og eigi að fara fyrr út, hvað vissi hún um mig?  Kannski var ég á hraðferð á sjúkraleiði ömmu minnar, var að missa af rútunni, eða því um líkt?

ARgh , þoli ekki svona gamlar herfur! úff, þótt að ég sé búin að eiga yndislegt kvöld þá er þessi beygla ennþá að pirra mig!

Posted by Jóna Björg at 23:42:27 | Permanent Link | Comments (1) |
Comments
1 - Þú hefðir bara átt að sparka í rassinn á henni og segja: baulaðu nú búkolla mín, ef þú ert einhvers staðar á lífi!

Hahahaha ég hata þig samt, þú veist það - komin í sveitina (bastarður!)

Kveðja úr Reykjavíkurrassgatinu (Comment this)

Written by: Arna at 2006/05/17 - 14:07:03
Write a comment