Monday, May 22, 2006

sveitin

Var að lesa aðeins yfir gamla bloggið mitt.. og þá þótti mér augljóslega gaman að skrifa. verð að segja að ritgleðin skín úr hverju orði og frasar eins og "hauslaus önd" og hvaðeina fékk að fjúka.

These old times...

Er aftur komin í borgina, og það er næstum því eins kalt hér og heima, nema það er minni snjór
Fyrsta daginn heima fékk ég næstum sólsting, en því var ekki að skipta eftir það, nema að frostbit lét frekar kræla á sér.

Var titluð gúnga af 10 ára frænku minni fyrir að vilja ekki stinga hendinni inn í rollu. Ætlaði að ná henni með því að segja "gerð þú það þá bara" en það kom í bakið á mér, hún vílaði sér ekki við það og dró út tvö lömb! alveg sérdeilis efnileg lambaljósmóðir, 10 ára að aldri!

Fyrsti dagurinn í álverinu að baki, vinnuvélanámskeið, þetta sumar verður áhugavert -in a good way :)

 

Posted by Jóna Björg at 21:50:35 | Permanent Link | Comments (1) |
Comments
1 - JOnaa....því ekki? (Comment this)

Write a comment