Friday, June 23, 2006

nei

Auðvitað er ég ekki hætt að blogga.. fyrr frysi í youknowwhat

Einnig vil ég koma því á framfæri að það var ekki ég sem eyðilagði álverið...

Ég er held ég líka búin að koma frekar undarlega fram við marga vini mína.. ég mun bæta ráð mitt!

Vantar einnig sárlega draumráðningu, þrátt fyrir margar yfirlýsingar þess efnis að allir draumar séu bara bull og vitleysa.. þá langar mig að vita hvað þessi sérstaki draumur gæti þýtt..

Skrapp heim í sveit í góðan sólarhring og sýndi borgarDönum sveitina mína, átti ótrúlega góðan tíma, fór á hestbak í fyrsta skipti í mörg ár, heilsaði upp á kusurnar mínar og lömbin. Auðvitað má ekki gleyma Sokka sem er mjög merkilega haltur!

Er núna fljótlega á leiðinni í staffapartí (ál eiðinni híhíhíh), það verður væntanlega forvitnilegt á ný!

Svo er útskrift stóru systur á morgun úr Háskóla Íslands, mikil veisluhöld á morgun!

Cool -neihh, sko! það eru komnir broskallar á bloggið mitt!

 

Posted by Jóna Björg at 22:33:50 | Permanent Link | Comments (1) |
Comments
1 - Sendu mér mail um drauminn gamla mín. En nú er ég svo aldeilis aldeilis aldeilis hissa - þú á hestbak???? Hvernig var það? (Comment this)

Written by: Arna at 2006/06/26 - 10:05:40
Write a comment