Tuesday, July 25, 2006

the hillbilly outfit

Komst að því um helgina, mér til mikillar ánægju að nýju gleraugun passa lika við hillbilly átfittið (með hina bráðnauðsynlegu derhúfu included!)

Sveitin var að sjálfsögðu frábær. Mamma átti þó athugasemd dvalarinnar þegar hún var að keyra mig á flugvöllinn í gær "Já, Jóna mín, það er alltaf gott að fá þig heim í sveit, sérstaklega í svona nokkra daga, þá hlýðirðu því sem við segjum þér að gera!"

Fékk svo mjög góða heimsókn á sunnudaginn en Arna og Ragnar komu í heimsókn í sveitina. Og þó að Ragnar hafi gefið lítið fyrir dráttarvélaeign peyjanna á Nípá, þá er það allt í lagi, langar hvort sem er ekkert að hafa Örnu sem nágranna! Cool TAKK fyrir komuna!

Tók svo aðra skiptivakt í morgun, og í þetta skiptið á 5 vaktinni. fín vakt, allt þar til mér var rétt skófla og sagt að moka súráli, inn í kerjum! ég hef einungis eitt orð um það: HEITT!!!
Jæja, er farin að leggja mig, vinna í kvöld!

Posted by Jóna Björg at 19:01:11 | Permanent Link | Comments (0) |
Comments
Write a comment