Friday, August 04, 2006

heimaumverslóogleiðistenerbráðumaðfaraaðvinna

óvei, ég sit heima hjá mér á föstudagskvöldi, um versló - að blogga!

Já, ég og meðleigjandinn föllum klárlega í flokkinn ungfrusorglegarpúnkturis

En svooo að ég haldi áfram að kvarta!

ég er búin að vera með "fjörfisk" í öðru auganu í laaangan tíma og nú er hann að færast þar að auki yfir í hitt augað!

ég er með nokkrar hugmyndir að ástæðum:

  • í álverinu er viss tegund af taugagasi sem myndast við blöndun loftkælds lofts og sódavatns
  • ég er á kafi í kókaíni
  • ég er þreytt og stressuð - skv. doktor.is
  • í asíska dósaréttinum sem er vinsæll á Sólvallagötunni inniheldur blásýru og þetta eru dauðakippirnir
  • snobb-merkið sem er á glerjunum í gleraugunum mínum eru dáleiðandi og augun eru að berjast hart á móti
  • ég hef ekki enn náð mér eftir maraþontalninguna sem fór fram í síðasta pistli

Hvað ætli sé líklegast af þessu?

 

Posted by Jóna Björg at 20:47:31 | Permanent Link | Comments (1) |
Comments
1 - Fjörfiskur er skemmtilegur. Og hana nú! (Comment this)

Written by: Berglind at 2006/08/18 - 05:44:31
Write a comment